f
þr
35;
r Jslenrka homöopalhra
SNAR af 5
ÍSLENZKA HOMÖOPATHIAN
OG
NORÐLENZKU PRESTARNIR,
RITAÐ AF
Dr. HJALTALÍN.
——
LANDSBÓKASAFN
om:
REYKJAVÍK 1858.
PRENTAÐ Í PRENTSMIÐIU ísLANDs. E. ÞÓRÐARSON.
L' homcopathie sest tenue en dehors de tous les
progrös de la Médecine moderme. Trousseau et Pi-
doux, Traité thérapeutique, Pag. LV.
{ ln norðlenzkir prestar, sumsð séra Magnús Jónsson á
Grenjaðarstað og stra Þorsteinn Pálsson á Hálsi, hafa árið
sem leið fundið sig knúða til að gjörast að nokkurskonar
homöopathiskum postulum fyrir land þetta, og má lesa
pistla þeirra í tveimur ritgjörðum, sem prentaðar ern á Ák-
ureyri 1857. Annar af þessum pistlum, sem út er kominn
á sumardaginn fyrsta, og hefur því átt að vera nokkurskon-
ar sumargjöf handa Íslendíngum, heitir „Homöopathian á
borð við Allopathiuna og Antipathiuna“, og er skrifaður, ekki
af postulanum Páli, heldur af postulanum þÞ. Pálssyni, og
er hann í rauninni ekki annað en illa frágeingin útleggíng
á þeim meðal lækna alkunna og marghrakta ritlíngi F.
A. Giinthers um „homöopathiuna“. Hinn pistillinn, sem
heitir „Dr. Hjaltalín og vísindin“, og á að vera nokkurs-
konar svar upp á ritgjörð mína um homöopathiuna í fyrra
vetur, er skrifaður af hinum hálærða, homöopathiska postula,
söra Magnúsi Jónssyni á Grenjaðarstað. Þessi pistill er
eins og hinn fyrri endaður í Aprílmánuði, og eru þeir
þann veg báðir ætlaðir til að vera eins og nokkurskonar
sumargleðja handa Íslendíngum.
Með því nú sá síðarnefndi af pistlum þessum einkum
hefur snúið málinu að mér, þá ætla eg einkanlega að fara
nokkrum orðum um hann, jafuvel þótt eg hálfnauðugur hreifi
við slíkum óþverra, sem þar er framborinn, einkum þegar
honum eru samferða slíkur hroki og gort, er alls eigi sæmir
neinum menntuðum manni, og allra sízt þeim, sem á að
leiða lýðinn í allan sannleika með hógværð og stillíngu.
Þegar eg í fyrra skrifaði ritgjörð mína „Vísindin,
reynslan og homöopatharnir“, og skoraði á homöopatha
vora, að svara henni með ástæðum, þá gat mér eigi dottið
1*
4
í hug, að menntaðir menn mundu fara að gjöra þetta með
fúkyrðum, slettum og lygum, sem allra minnst sitja vel á
þeim, er eptir stöðu sinni eiga að vera sannleikans og
hógværðarinnar sendiboðar og erindisrekar, en eg vil biðja
hvern óvilhallan og menntaðan mann að lesa „„exordium“
hjá prestinum sðra Magnúsi Jónssyni á Grenjaðarstað í áð-
urnefndu riti hans, og dæma. svo sjálfan; en „exordiumið“
prestsins hljóðar svona:. „Eg var nanmast búinn að yfir-
fara „Vísindin, reynslan og homöopatharnir“, þegar eg sá,
það hefði átt að heita að röttulagi: „Fáfræðis-ósanninda-
haturs- og sleggjudóma-pvættíngur um homöopathana“ “; og
þessi „grautur“, sem hann. svo kallar, á nú að vera bland-
aður „lygasögum um homöopathana, drembilegum lær-
dóms-drjúgyrðum og gorti“.
það er eins og blessaður presturinn, begar hann skrif-
aði þetta, hafi haft hið gamla latínska máltæki í huga sér:
„Lastaðu djarflega, menn trúa þó allténd einhverju af því“
— Detractori audacter semper aliquid hæret —. Hann
hefur, eins og sjá má af riti hans, orðið reiður við áður-
nefnda ritgjörð mína, og hugsað svo að svala sér og við
hafa fúkyrði, í stað þess að koma með ástæður. En herra
presturinn, þessi sannleiksins og hógværðarinnar kennari,
hefði átt að spara sér þessa reiði, því mér sýnist hún held-
ur fara að sitja illa á honum, þegar pistillinn hans ber það
með sör, að hann er hvergi ofþýngdur af sannleika, lærdómi
eða hógværð, eins og síðar mun sýnt verða.
Séra Magnús hefur skipt pistli sínum í 5 greinir, sem
hann þykist þurfa að. rótfesta hjá almenníngi, áður en hann
fer að hrekja áðnrnefndan bækling minn, „Vísindin reynsl-
an og homöopatharnir“. Þessar ó greinir eiga nú að vera
máttarstoðirnar undir hans mikla homöopathiska musteri, og
til þess að það geti staðið sem fastast, vill hann fyrst reka
þær niður og jarðfesta þær í heilum lesendanna,: svo að
einginn stormur eða hreggviður kunni þeim að granda.. Vér
skulum nú skoða þessa máttarstólpa hans, sjá, hvað gildir
þeir eru, og hvað fallega þeir eru til höggnir, heflaðir og litaðir.
Hinn fyrsti máttarstólpi homöopathiska musterisins ér
svona lagaður:
„Grundvallarregla homöopathanna“ (segir postulinn),
„líkir sjúkdómar batna af líkt verkandi meðölum“ — simi-
lia símilibus curantur —, styðst bæði við vitnisburði margra
mérkra allopatha, og er byggð á náttúrulögmáli!!
Hann (presturinn) sýnir nú því næst, hvernig orðið homöo-
pathia sé undir komið, og hvernig homöopatharnir við hafi
öldúngis gagnstæða aðferð við allopathana, hverra fyrsta erfða-
synd á að vera það, að þeir við hafi meðöl, sem eru „gagn-
stæð“ sjúkdóminum og þess vogna standi ekki í „neinu sam-
„bandi við hann“, á meðan homöopatharnir „brúki til lækn-
„ínga þan meðöl, sem inntekin af heilbrigðum í stórskömt-
„um orsaki sjúkdóm, er sé líkastar sjúkdómi þeim, er þeir
„vilji lækna“. En hr við bætir nú rithöfundurinn þeirri
athugasemd, að eg „ljúgi“ því, að homöopatharnir taki með-
ölin í smáskömtum, þegar þeir séu að reyna þau. Eg hef
nú ekki að svara þessu öðru en því, að eg neyðist til að
trúa, að preéstskepnan hafi aldrei lesið neina homöopathiska
bók, þótt hann látist vera afarmikill homöopath, því annars
væri hann naumast svo ósvífinn, að segja mig „ljúga“ það,
er stendur nálega í hverri homöopathiskri bók, og ber hann
því þannig sjálfur böndin að sér með það, hvað herfilega
fákunnandi hann er í því, sem hann ér að innprenta lönd-
um sínum, að hann viti manna bezt. Eg verð að biðja
herra „pastorinn“ eða postulann, hvort sem hann heldur vill
heita, að lesa Hahnemanns „Reine Arzneimittellehre“ og
Hartmanns „Systematische Darstellung der Arzneiwirkun-
gen“ vel ofan í kjölinn, áður en hann fer að segja mig
„ljúga“ það, sem alkunnugt er, og svo að segja finnst í
hverri homöopathiskri skruddu, en það er, að homöopath-
arnir alltönd reikna vérkanir meðalanna eptir því, sem þan
verka í „smáskömtum“. það er auðsöð að söra Magnús
treystir því, að landar hans muni ekki vel að sér í þýzk-
unni, því annars hefði hánn ekki þá ósvífni, að segja mig
ljúga upp á Hahnemagn og homöopathana, er eg við hef
6
þeirra eigin oré, eins og þau standa í prentuðum bókum -
þeirra eptir þá sjálfa, en þetta gjörir hann þó á mörgum
stöðum, svo það er annaðhvort, að hann skilur ekki þenna
lærdóm, sem hann læzt vera að kenna, eða hann vísvitandi
segir ósatt á móti betri sannfæríngu. „ Herra pastorinn
gleymir því líka, að með þessu móti kemst hann í herfi-
Fs
lega mótsögn við sjálfan sig, þar sem hann á öðrum stað,
sumsé bls. 26--27, segir, að meðölin „þurfi að vera í
smáskömtum til að geta verkað á líkamann, og sýnt
krapta sína“. — Það mátti nærri því geta, að annar eins
maður og Hahnemann, sem hafði einga trú á stórskömt-
unum, heldur á smáskömtunum, sem hann áleit eina færa
um að geta verkað á líkamann, aldrei gat dottið það í hug,
að fara að reyna meðölin á þeim „óþjálu skömtum“, eins
og presturinn kallar þá, þegar hann mátti vita fyrirfram,
eptir hans sjónarmáta, að þau gátu ekki, eins og séra Magn-
ús einnig játar, verkað á líkamann nema í smáskömtum; já
herra pastorinn segir sjálfur, „að allir heilvita menn sjái,
að verkan þeirra geti ekki átt sér stað nema með því, að
þeim sé skipt í sem smæsta parta“. Af þessu geta nú
allir heilvita lesendur séð, að það var tómur óþarfi fyrir
herra prestinn að gína svo mjög yfir því, er eg sagði í
riti mínu, „að læknum hefði enn þá ekki tekizt að setja í
sig vissa sjúkdóma eptir Hahnemanns lærdómi“, eins og hann
gjörir í riti sínu bls. 14, og allra sízt þurfti hann að stela
því undan, er eg lagði til í riti mínu, þar sem þar stendur
„eptir Hahnemanns lærdómi“.
sg hef enn þá aldrei á æfi minni séð nokkurn rithöf-
und fara ósvífnar með rithöfunda, en þessi góði prestur
gjörir, því auk þess að hann almennt skrökvar upp á þá
heilum meiníngum, og snýr út úr orðum þeirra á þann
viðbjóðslegasta hátt, þá er hann þar til svo ósvífinn, að
hann heldur ekki hlífir þeim, er hann má álíta sem sína
lærifgður, en hvort þetta kemur heldur af heimsku eða ill-
girni, það má hann bezt sjálfur vita. Þannig segir hann
á meðal annars á bls. 22 í þessu sínu merkilega riti, þar
a
sem hann er að tala um meðalatilbúníng homöopathanna,
á þessa leið: „það eru ekki homöopatharnir, heldur einmitt
allopatharnir, sem þurfa að Arísta og skaka meðölin“, en
þó segir Hahnemann sjálfur, að það sé einmitt höfuðregl-
an við. tilbúnínginn á homöopathisku meðölunum, að þau
stu hrist og skekin eptir föstum reglum, en þessu stelur
söra Magnús ekki að eins undan, heldur þrætir og fyrir
það!. En hver veit nema prestskepnan hafi ekki viljað láta
almenníng vita þessa merkilegu vísbendíngu Hahnemanns
um meðalatilbúnínginn, af því hann kynni þá að verða of
lærður, og hann veit sjálfur af reynslunni, að hægt er að
verða homöopath hér á landi á vorum dögum, ef menn bara
kunna að búa til meðölin, eða eru nógu óskammfeilnir til
að látast kunna það.
Þegar eg þannig stuttlega hef sýnt, hvernig herra
présturinn stelur undan, misskilur, og snýr út úr hjá læri-
meistara sínum, og hann fer þannig með hið græna tréð,
þá mun lesendum mínum bráðum geta skilizt, að hið visna
tréð, „allopatharnir“, sem eru óvinir hans, hafi ekki við góðu
að búast, enda þykir mér heldur taka í hnúkana, þegar gamli
1) Til þess að menntaðir menn geti söð, hvernig Hahnemann sjálfur
hefur farið að þessu, set eg hör orðrötta klausu úr „Ugeskrift for Læ-
ger“ 13. Juni 1846, en hún hljóðar svona:
„Men naar man seer, hvori den homöopathiske Præparation bestaaer,
der skal udvikle disse overordentlige Kræfter, maa man uvilkaarligt
trække paa Smilebaandet. I nogle faae Aar vil Hahnemann have gjort
saa mange Forsög, at han deraf troer sig berettiget til at uddrage den
uomtvistelige Erfaring !, at der f. Ex. til de förste 2 Grader af Dosis-
Formindskelse (der bevirkes ved Blanding af Mælkesukker) nödvendigvis
maa stödes 6 Gange, hver Gang 6 Minuter, og afvexlende hermed om-
skrabes 6 Gange, hver Gang 4 Minuter, saa at hele Præparationen
nölagtig optager 1 Time. Ligesom ogsaa Oplösningerne i Alcohol og Vand
absolut maa omröres netop 10 Gange (mit zehn Arm - Schligen); det
vilde naturligviis være en ubödelig Skade, om Stödningen og den vig-
tige Sammenskrabning varede í $ Minuter hver !!, eller, om man kun
rörte 9 Gange i Oplösningen, eller lidt for hurtigt, hvor det skal være
langsomt, o.s. v“. þetta staðfestir og stra þorsteinn, þar sem hann
segir Í riti sínu (sjá blaðs. 31), „að handbragðið gjöri svo mik-
ið til, að decillionföld þynníng geti verkað 222.
8
Hippocrates, sem. orðinn er að moldu fyrir 2200 árum
síðan, allt í einu. er: gjörður að nokkurskonar. homöopath,
Jafnvel þótt það væri hann, er fyrst sagði : „Gagnstætt lækn-
ar gagnstætt“, „Ta évaytía tóv €vaytlay Éotw: tip.ara“,
og hefur þessi nafnfrægi læknir aldrei lagt þá þýðíngu í orð
sín, er séra Magnúsi og öðrum homöopöthum hefur þókn-
azt. að spinna út úr þeim. Hippocrates, var líka allt of
mikill læknir til þess, að hann vissi ekki, að ekki að eins
tveir, heldur og jafnvel fleiri sjúkdómar, geta átt sör bústað
í mannlegum líkama í senn, og orðið dáindis vel ásáttir að
búa saman í honum, unz hann. er: eyðilagður. Það þarf
varla mikinn lærdóm til að. sjá þetta, því dagleg „reynsla
sýnir það hverjum eptirtektasömum manni, þótt hann lítið
sem ekkert viti í læknisfræði. Eg held það sé. naumast
miklar nýjúngar hör á Íslandi, að sjá: menn að fram komna
í lifrarveiki, brjóstveiki eða holdsveiki, stynjandi. undir ýms-
um öðrum kvillum, er hér: yrði of. lángt upp að telja, og
beri þá með höfuðkvillanum allt til grafarinnar. Það hefur
ekki borið á öðru, en að bæði mislíngasóttin og kvefsóttin
hafi lagzt á hina holdsveiku, ; og; búið með fullu samlyndi
saman við hana í líkamanum; og þótt mörgum batnaði misl-
íngarnir og kvefsóttin, var holdsveikin og lifrarveikin, bæði
á meðan Sóttirnar vöruðu, og eins eptir það, eingu minni,
heldur jafnvel verri, en þær áður verið höfðu. Það stoðar
því harðla lítið herra „pastorinn“, þótt hann sé enn fremur
að. slíta sér út á því, að skírskota til ýmsra lækna frá
fyrri öldum, bæði með þetta og annað, og það situr því
lakar á honum, að vera að finna styrkíngar fyrir meiníng-
um sínum í þessu máli úr ritum hinna eldri lækna, sem
honum þykir minna til þeirra koma, "og sýnir það víða í
riti sínu, að hann niður: níðir þá á allar lundir, þar sem
honum þykja þeir ekki vera samdóma þessum hans svo
kallaða nýja lærdómi. Á hinn bóginn er það og auð-
sjeð, að prestskepnan hefur farið í smiðju, þótt hann láti svo,
sem hann hafi allan þenna mikla lærdóm með öllum sín-
um tilvitnunargreinum (Citater) af sjálfs síns lestri. „Til
>
9
að sannfærast um þetta, þarf maður ekki „annað. en lesa
varnarrit hinna eldri:og nýjari homöopatha á Þýzkalandi,
„Hahnemanniana“, sem út hafa komíð í Berlin. og víðar
frá 1820—34, hvar allur þessi eitatagrautur finnst niður
raðaður. á sama hátt og herra presturinn hefur gjört, og
er hann ætlaður til þess að villa sjónir almenníngs í mál-
efni því, er hann lítið eða ekkert skynbraágð ber á. Það stoðar
lítið, þótt læknar hafi hrakið þetta aptur og aptur, bæði á
Þýzkalandi, í Danmörku og víðar, því homöopatharnir við hafa
þá sömu aðferð sem norðlenzku prestarnir. Þeir snúa sér
að almenníngi með ýmsar lygasögur, rángfærðar og afbak-
aðar greinir úr ýmsum rithöfundum, er þéir vita, að almenn-
íngur einga sannfæring getur um feingið.. Þetta á svo sem
að sýna þeirra mikla lærdóm, og þeim hefur opt tekizt
furðanlega vel að blinda almenning með þessu; En ein-
mitt með þessu bera þeir sjálfir böndin að sér á endanum,
því þegar þeir eru búnir að sjóða þenna rángfærða „citata-
graut“ frá hinum eldri læknum og fá sér spón al honum,
þá fara þeir að skamma. þá fyrir heimsku þeirra og lær-
dómsleysi. Þetta hefur séra Magnús einnig trúlega apað
eptir þeim, því á bls. 16 í riti hans stendur svo: „Hug
mynd. sú, sem til vor er komin úr myrkri hinnar fornu
læknisfræði, er með öllu raung“ !!. En því er þá þessi bless-
aði norðlenzki ljósberi að fálma út í þetta forna allopathiska
myrkur, og tína þaðan sannanir fyrir „homöopathiunni“,
þessum nýja lærdómi, sem uppljómar allan heim? er hann
ekki hræddur um, að. þessir allopathisku dásar „muni taka
sig illa út millum þessara fögru homöopathisku vaxljósa
með öllum þeirra ljóma innan um hans fagurskrýdda ho-
möopathiska musteri? Að öðru leyti finnst mér hann naum=
ast. þurfa að lá allopöthunum, eða fálla í forundrun yfir
þeirri villu þeirra, er hann kallar (sjá bls. 16), þótt þeir
hafi tekið meðöl inn heilbrigðir, til að reyna verkanir þeirra
á sínum eigin líkama, því hafi homöopatharnir, eins og hann
segir (bls. 20), 300 meðöl, hverra verkun þeir eiga að þekkja
nákvæmlega, „af því þeir heilbrigðir hafa reynt þau á sín-
10
um eigin kroppi“, og það eptir hans eigin sögn á stór-
skömtum, þá hafa þeir þó heldur en ekki þurft að láta
upp í sig meðalabita.
- Aldrei tekur nú samt betur í hnúkana hjá þessum
homöopathiska postula, en þegar hann eptir skammirnar
til allopathanna neðst á bls. 16 fer að sýna lesendum sín-
um hyrníngarstein hins veglega musteris, því þar byrjar
hann svona:
„Reyni menn nú að grennslast eptir, hvernig meðalið
verkar á mannlegan líkama, verða þeir að setja á sig ept-
irfylgjandi atriði, er sýna gildi lækníngaraðferðar homöo-
patha“(222). Þetta höfuðatriði hjá blessuðum prestinum verð-
ur nú það, að líkami mannsins uppfylli einn óskiljanlegur
kraptur, er hann kallar lífskrapt, sem eins og nokkurskon-
ar formaður gæti að því, að allir líkamans hásetar (part-
ar eða verkfæri líkamans) gegni ætlunarverki sínu. Á með-
an þessi formaður er með fullu fjöri, þá fer nú vel, en
þegar hann dasast, þá fara hásetarnir (það eru líkamspart-
arnir) ekki að hlýða, og þá þarf nú að gefa formanninum
í staupinn, þó ekki eins og við allopathar gjörum, heldur fær
hann nokkurskonar homöopathiskt pínustaup, eða ógnar-
lega lítinn sykurmola, til að stínga upp í sig, sér til hress-
íngar, svo hann geti stýrt skipinu og látið hásetana hlýða
sör; og þetta er nú höfuðefnið eða endirinn á fyrsta mátt-
arstólpa prestsins í hans homöopathiska musteri (sjá bls.
17—21). það er nú svo sem sjálfsagt, að herra prestur-
inn hefur ætlazt til þess, að almenníngur skyldi gefa hon-
um fundarlaunin fyrir þessa miklu uppgötvun, en það er
nú samt svo fjærri því, að hann eða Hahnemann eigi þau
skilið, að allopatharnir voru búnir að finna þenna svo
kallaða „lífskrapt“ laungu áður, en Halhnemann og séra
Magnús voru fæddir í þenna heim. Þessi svo kallaði lífs-
kraptur eða (vís vitalís) með öllum þeim uppsmíðuðu eig-
inlegleikum, er hann á að hafa, var fyrir laungu kunnur á
Helmonts og Tissots dögum, eða nærfellt fyrir 300 árum
síðan, og homöopatharnir hafa ekkert annað gjört, en þeir
1l
hafa tuggið það upp eptir gömlum læknum, sem lilðu á
17. og 18. öld, afbakað orð þeirra og. komið svo fram
með þau eins og sitt eigið smíði.
Læknirinn og náttúrufræðíngurinn Paracelsus, er lifði
öndverðlega á 16. öld og dó 1541, var sá fyrsti, er byggði
lærdóm sinn um sjúkdómana og lækníngar þeirra á þeim
svo kallaða lífskrapti, er hann kallaði „Archæus“; en ýmsir
merkislæknar, er lifðu seinna á 16. og 17. öld, og þótti
þetta nafn óljóst, kölluðu þenna krapt „vís vítalis“, og það
nafn hefur haldizt fram á vora daga. Það var og einnig
Paracelsus, er fyrstur allra lækna fann upp hinn „homöopa-
thiska“ læknismáta, er hann kallaði medicatio, eða methodus
substitutiva, og hann var sá fyrsti, sem sagði: „lékt læknar
líkt“ (similia similibus opponenda). Þessu stal nú Hahne-
mann,-og til þess að stuldurinn yrði ekki uppvís, bjó hann
til þessar smáskamta inntökur, sem Paracelsus víst mundi
hafa þakkað honum lítið fyrir, hefði hann lifað honum sam-
tíða, því Paracelsus. var vel máli farinn og í öllum grein-
um lángtum lærðari en Hahnemann. Af þessu geta nú
landar mínir séð, hvað spángýr lærdómur „homöopathian“
er, eins og. norðlenzku prestarnir eru að innprenta þeim, og
þeim mun varla þurfa að þykja þeir fylgja of vel tíman-
um, þegar þeir fá að vita, að það er almennt sýnt og sann-
að meðal hinna nýjustu náttúrufræðinga og lækna, að lífs-
kraptur sá, er homöopatharnir tala um, og byggja allt á, er
alls ekki til, allra sízt í þeim skilníngi, er þeir taka hann.
Þetta kann nú að þykja nokkuð skrítið, og því verð eg að
fara fleirum orðum um það, jafnvel þótt það sé mjög örð-
ugt, að gjöra slíkt skiljanlegt fyrir almenníngi, er litla sem
einga þekkíngu hefur, hvorki á lífinu yfir höfuð að tala,
eða á hinni aðdáanlegu samteingíngu skaparans milli sálar
og líkama. Af eldri ritum hafa margir menntaðir menn
án efa feingið trú á hinum svokallaða „lífskrapti“, og eg
ætla, að það sé í rauninni ekki svo fáir, er hafa álitið hann
sömu tegundar sem sálu mannsins, en slíkt hefur leitt af
sér mikla villu, og homöopatharnir hafa trúlega aukið hana
með heimskulegum og hégiljufullum hugmynda smíðum.
Eg vil nú fyrst í stuttu máli leiða lesendum fyrir sjón-
ir meiníngu hinna lærðustu manna, sem uppi eru á vor-
um dögum um þetta efni, og því næst vil eg með fám orð-
um tala um læfið og léfskraptinn, og sést þá bezt, hvað
mikið verður úr þessum máttarstólpa hinnar homöopathisku
byggíngar. Einhver hinn lærðasti lífseðlisfræðíngur vorra
daga, hirðráð Carus í Dresden, talar um þenna lífskrapts-
lærdóm á þessa leið: „Hvílíkan fjölda heimskulegra hug-
mynda: hefur ekki þessi aðskilnaður á krapti og lifandi
líkams pörtum (Organ) af sér fætt í lílsfræðinni! — Menn
vildu ekki gjöra sig ánægða með að þekkja lífið í þess
þúsundföldu ummyndunum (Metamorphoser), menn lötust
ætla að finna og sýna einhvern sérstakan krapt, og við það
komust menn á óskiljanlegar villigötur“!. Professor Mulder,
hinn nafnfrægasti efnafræðingur vorra tíma, segir: „Það, að
viðtaka einn almennan krapt, er menn hafa kallað lífskrapt,
sem eigi eins og að stjórna hinam lifandi pörtum, á hvergi
heima við reynsluna“?.
Háskólakennari Valentin í Bern, einhver hinn nafn-
frægasti og mest viðurkenndi lífseðlisfræðíngur hinna nýjari
tíma, segir í lífseðlisfræði (Physiologie) sinni: „Viðtektin á
þessum svo kallaða lífskrapti er eigi að eins tómt hjal um
fjölda ókunnugra ásigkomulaga (9: líkamans), heldur leiðir
hún til ályktana, sem standa í beinni mótsögn við það, er
1) Welche Massa sonderbarer abstruser Vorstellungen hat dieso
Trennung von Kraft und Organ nicht eben in der Lehre von Leben
allein herbeigefihrt! — Man war mit dem Wahrnehmen und Erken-
nen des Lebens und seiner tausendfiltigen Metamorphosen allein nicht
zufrieden, man wollte einebesondere Lebenskraft erkennen und
nachweisen, und fiel auf die wunderlichsten Irrwege. Sjá Garus Physio-
logie, Leipzig 1849, 1. Th. Pag. 20.
2) Die Annahme einer -allgemeinen Kraft, welche die organischen Ge-
bilde beherrseht, der so genannten Lebenskraft, findet durch die
Erfahrung keino Bestátigung. Mulders Physiologische Chemie, Braunsch-
weig 1851, 1, Th. Pag. 62.
4
13
lífseðlisfræðin kennir manni“?. Hinn nafnfrægi efnafræð-
íngur, barún Bergelius (sem söra Magnús og svo þyk-
ist vera að skírskota til), barðist leingi á móti lærdómnum
um hinn svo kallaða „léfskrapt“, og vildi fá menn til að
sleppa nafninu, er hann kvað orðið að villuljósi hjá all-
mörgum, og slíkt hið sama gjörði efnafræðíngurinn Leh-
mann (hvern séra Magnús og svo þykist þekkja), og hann
segir því í sinni „organisku Chemie“ bls. 41: „Látum oss
líta nokkur fimm ára bil aptur á bak, og yfir líta þann fjölda
af viðburðum í hinum lifanda heimi, sem menn þá leiddu
út af hinum þokuhulda lífskrapti, en sem nú við upp-
götvanir Magendies, Valentins, J. Miillers og Webers —
(sem allir eru nafnfrægir lífseðlisfræðíngar) og annara, eru
sannaðir að vera upp sprottnir af hreinum eðlisfræðislegum
náttúruviðburðum eða lögum“?. Á líkan hátt tala allir
hinir nýjustu lífseðlisfræðíngar og efnafræðingar, sem uppi
ert á vorum dögum, og söst því á þessu eins og mörgu
öðru, hvað nákvæmlega norðlenzku homöopatharnir og þeirra
lærifeður fylgja með tímanum.
En hvað er þá þetta líf, ef einginn lífskraptur er til?
munu margir segja; hvernig ætlar þú að gjöra'oss skilj-
anlegt, að vér getum lifað, ef einginn lífskraptur er í 083?
eg held þú eigir bágt með það. Þetta er svo gömul kenn-
íng, hvað nýja sem homöopatharnir vilja láta hana vera,
3) Die Annahme einér solchen Lebenskraft giebt aber nicht nur
ein blosses Wort fiir eine Reihe sonst unbekannter Verhöltnisse, son-
dern fihrt auch zu Folgerungen, welche genaueren physiologischen Kennt-
nissen widerstreiten, Prof, Valentins Grundriss der Physiologie des
Menschen, Braunschweig 1856, Pag. 2.
%) Blicken wir nur einige Lustra zuriick, und úberschauen die Menge
von Erscheinungen in der organischen Welt, die man damals von der in
ewigon Nobel gehillten Lebenskraft herleitete, wihrend wir sie jetæt nach
den Forschungen eines Magendie, Valentin, J. Möller, Weber
und andrer als einfache Folgen rein physiseher Gesetze erkannt haben.
Sjá Prof. Lehmanns Lehrbuch der Physiologisehen Chemie. Leipzig
1848, Pag. 41. Af þessn má sjá, hvað spáný þessi gamla lífskraptaþoka
homöopathanna er. f
14
og vör erum orðnir svo vanir henni, að vör eigum bágt
með að slíta oss frá henni. Hvað ætlar þú að gjöra
við ódanðlegleika sálarinnar, ef þú neitar lífskraptinum? eða
ætlar þú að fara að kenna oss þann lærdóm, að vör drep-
umst út af eins og hrædýrin? Vittu það fyrir víst, að vér
trúum eingu því, sem er andstætt trú vorri á ódauðlegleik-
anum, enda munum vér hafa nægar sannanir fyrir honum,
á meðan prestar vorir og guðfræðingar eru uppi, ekki sízt
þessir hálærðu, homöopathisku norðlenzku prestar, hvað sem
þú svo segir.
Þannig munu margir hugsa og tala, þegar þeir heyra,
að eg vil ekki kannast við þenna svokallaða sörstaka líls-
krapt, sem maðurinn á. að hafa, og eg lái þeim það að
miklu leyti ekki, því einmitt slíkar og þvílíkar hugsanir
gjörðu, að eg enn þá nokkru eptir,að eg var orðinn læknir,
hölt fast við þenna léfskrapt, svo leingi sem eg gat, þáng-
að til laung umhugsun og lestur góðra rithöfunda ljóslega
sýndu mér, að þetta væru nokkurskonar hugsmíðar, sem
hvergi ættu heima í náttúrunnar ríki, og sem í rauninni
leiddu menn í allt aðra átt, en þeir höfðu hugsað. En hvern-
ig stendur þá á lífinu? munu lesendur mínir enn fremur
spyrja ; hvað er lífið, fyrst einginn lífskraptur er til? hvað
er þá það, sem saman heldur líkamanum, lætur hann vaxa,
þroskast, lifa og deyja? Eitthvað má það þó vera, og eg
skal nú í stuttu máli leitast við að svara þessu, og þótt
það kunni að verða miður af hendi leyst, en eg vildi, þá
verða þeir að vorkenna mör það, því það mun koma að
miklu leyti af því, að eigi er hægt að gjöra slíka hluti
skiljanlega fyrir þeim, sem lítið þekkja til náttúrunnar og
hennar margbreyttu efna. Eg skal nú gjöra litla tilraun,
að leysa úr þessu, og hún er svona.
Eg vona, lesari góður, að þú sjáir það, að fyrir aug-
um þínum sveima óteljandi hlutir, og það slíkir, er þú veizt
eigi nafn að gefa. Líttu upp í hinn alstirnda himin, og
þú munt sjá þar óteljandi stjörnur með skærri birtu og
miklum ljóma. Vittu, að líkamir þessir, sem sýnast svo
a
15
litlir fyrir þínum augum, eru stórir hnettir, sem allt af eru
á hraðri ferð um alheiminn, fljúgandi með hraðari ferð en
nokkur byssukúla, og þó eru þeir svo takmarkaðir í gángi
sínum, að ekki víkja þeir út af leið sinni, heldur halda þeir
henni áfram, sem afmældur vegur væri, um tíma og aldur.
Renndu nú aptur augum þínum fyrir fætur þér, hvort þú
heldur vilt niður í hina dökkleitu mold, eða yfir hina
grænu, grösum skrýddu grund. Í moldinni, sem sýnist vera
svo ljót og svo einföld, liggur efni það, af hverju þú ert
gjörður, og þú skalt aptur að henni verða; vittu fyrir víst,
að þótt hún fyrir augum: þínum sýnist dökkleit, dauð og
lítils verð, þá liggur þó í henni efnið til þín og alls þess,
er hrærist á jörðinni; gáðu að því, að í henni er fólginn hinn
sami almættiskraptur, sem þeytir stjörnunum um alheiminn,
og skamtar hinum óteljandi sólum, hnöttum og túnglum
þeirra gang um himinhvolfið. Hugsaðu þá um það, sem
stendur í guðs orði, en það er: „af jörð ertu kominn, að
jörð skaltu verða, og af jörðinni skaltu aptur upprísa“; vittu,
að þetta eru heilög sannindi, sem hin í þínum augum svo
lítils verða dauða mold bendir þér á, ef þú þekktir hina
huldu náttúru, sem í henni liggur. Þegar þú litla stund
hefur skoðað og ígrundað allt þetta, þá renndu augum þín-
um yfir hafið og líka yfir þenna stóra geim, sem eingan
enda sýnist hafa. Hugleiddu nú vel, að í þessum geim lifa
óteljandi skepnur, er þú getur opt sjeð með augunum, en
hinar eru þó millíón-sinnum fleiri, er þú aldrei fær augum
litið, þótt þú gætir geingið og skriðið með endilaungum mar-
arbotni; því á hverjum dropa vatns, sem er í hafinu og
vötnunum á meginlandinu, lifa mörg lifandi dýr, er þú aldrei
fær augum litið. Rennir þú nú aptur augum þínum yfir
hina grænu grund, þá mætir þér hin sama margbreytni,
þú sér þar óteljandi jurtir með ýmsum skapnaði, sem ept-
ir tímanna skiptum lifna, þroskast og deyja. Sjálfur sólar-
geislinn sýnir þér óteljandi agnir, sem eru á sífelldu yði
og hreifíngu, og sýnir þér, að loptið er fullt af einhverjum
þér ókenndum lífshræríngum. Þegar þú hefur með sannri
16
eptirtekt og umhugsun yfir litið og aðgætt allt þetta, þá
muntu bráðum verða þess var, að hör eru einhverjar hreif-
íngar, sem lángt yfir gánga skilníng þinn. þú veizt ekki,
hvaðan þær: koma, eða hvert þær stefna, en að þær sðntil,
getur þú ómögulega neitað, nema þú sért sjáandi blindur
og hugsandi hugsunarlaus. Eg gjöri nú ráð um, lesari
góður,.að þegar þú hefur séð allt þetta, þá munir þú koma
til mín með steinmola og segja: „Þú þykist alstaðar sjá hreif-
íngu og líf, í lopti, sjó, vatni og jörð; láttu mig nú sjá,
gjörðu nú steininn þann arna lifandi, eða sýndu hreifíng-
una í honum, eg held að steinmolinn sá arna sé þó nokk-
urn veginn dauður, og hafi einga hreifíngu í sjálfum sér,
hvernig sem með hann er farið“. Eg skal nú aldrei neita
því, að þetta er nokkurskonar vandaspurníng, og ekki ólík
þeirri, er djöfullinn gjörði frelsaranum forðum, þegar hann
bað hann að gjöra steinana að brauði, en þó ólíku sö sam-
an að jafna, þá skal eg þó reyna tilað sýna þér, að steinn-
inn er ekki svo ómerkilegur eða hreilíngarlaus, eins og þú
heldur. Taktu við stækkunarglerinu og skóðaðu í steininn
og segðu mör svo, hvað þú sér; eg ímynda mér nú, lesari
góður, að þegar þú ert búinn að líta á steininn í stækk-
unarglerinu um hríð, þá munir þú sjá í honum smáagnir,
og það jafnvel skærari og fegurri, en þú bjóst við, og að
þú munir eiga bágt með: að neita mör því, að agnir þess-
ar hafi ýmsar myndir, en viljir þú sjá, hvernig agnir þessar
myndast af sjálfu sér, þá verður þú að lofa mér að taka
steininn, mola hann og uppleysa á þann hátt, er eðli hans
er til, en þegar eg er búinn að því, þá skal eg aptur
með öðru stærra stækkunargleri „geta sýnt þör, hvernig
agnir þessar myndast, vaxa: og þroskast, unz þær hala náð
sinni röttu upprunalegu mynd, allt að einu og grasið vex upp
úr fræinu,. og tekur á sig sérstaka mynd eptir eðli þess og
náttúru. Gæti eg nú, lesari góður, sýnt þér, hvernig dýrin
koma! upp, lifna, vaxa og þroskast, þá mundir þú ómögu-
lega geta neitað mör því, að þetta skeður við nokkurskon-
ar náttúruefnunum óaðskiljanlega innri hreifíngu, sem í öllu
i7
eðli sínu er harðla samsvarandi þeirri, er þú sör á stein-
inum, þá er hann er að myndast úr myndarlausri leðju og
vökva, og á fræinu, meðan það úr dálitlu krínglóttu hnoða
verður að hárri og fagurri jurt, sem lifnar, þroskast og vex
í hinni dökkleitu moldu. Lífið er því eigi annað en þessi
fólgna guðdómlega fyrirætlun, sem er óaðskiljanleg frá
náttúruefnunum, en gjörir það að verkum, að þau eptir
vissu lögmáli setja sig í ýmsar myndir, allt eptir þeim
máta og reglum, er fyrir hugað var frá upphafi.
Þegar þú nú með nokkurri eptirtekt hefur aðgætt þetta,
lesari góður, þá býst eg við, að þú munir spyrja mig, hvaða
mismunur sð á efnum og krapti, og það skal eg segja þér,að
hann er í stuttu máli þessi: Efni kalla menn alla þá hluti,
sem á einhvern hátt verða vegnir, spannaðir, eða mældir ;
krapt kalla menn það, sem annaðhvort hreifir sig sjálft, eða
setur aðra hluti í hreifíngu; kraptur og efni eru ó-
aðskiljanlegir hlutir, og það veldur miklum ruglíngi í
vísindunum, er menn vilja skilja það að; en efnin eru
gædd ótal kröptum, og þessir kraptar sýna sig á ýmsan
hátt, eptir því sem efnunum slær saman. Menn þekkja nú
um stundir 62 frumefni á vorum hnetti, og geta þau á
ýmsan hátt sameinazt sín á milli, en sameiníng þessi skeð-
ur jafnan eptir föstum hlutföllum, sem skaparinn hefur á-
kvarðað frá öndverðu. En þetta er náttúrulögmálið, að
kraptur efnanna er alla-jafna í vissu hlutfalli við stærð
þeirra; hann mínkar því við öll efni, þegar efnið
verður minna, og stækkar, eptir því sem efnið er stærra,
allt eptir eðli þeirra og náttúru. Í sjálfum frumefnun-
um liggja sérstakir kraptar fólgnir, er menn þó aldrei geta
aðskilið frá þeim, heldur eru óaðskiljanlega samteingdir við
þau, og við sambland frumefnanna æxlast og umbreytast
kraptar þessir á ýmsa vega, og þannig leiðast í ljós ótelj-
andi myndir í lopti, vatni og jörðu, og er vér sjáum þess-
ar myndir hreifast og vaxa, eins og af sjálfu sér, þá köll-
um vér þær lifandi. Frumagna-hreifíngin er því aðal-
einkenni hinna lifandi líkama, og vör köllum vanalega þann
2
18
líkama dauðan, á hverjum vér einga frumagna-hreifíngu sjá-
um. Nú með því að öll náttúruefnin með þeirra kröptum
Í raun og veru eru á sífelldri hreifíngu, þótt vör með augum
vorum opt eigi getum séð hana, þá segjum vér, að öll
náttúran sé lifandi, og að lífið sé óaðskiljanlega samteingt
náttúruefnunum'. Vér köllum raunar hluti þá, hverra hreif-
íngu vér eigi sjáum, dauða, en oss yfirsöst, af því að skiln-
íngarvit vor eru allt of sljó, til að sjá hinar huldu hreif-
íngar náttúruefnanna, sem allt af eru í sífelldri umbreytíngu,
þótt. þau sýnist að vera danð og hreifíngarlaus fyrir vor-
um augum. Steinninn sjálfur, sem fyrir vorum augum er
eins ng einhver fyrirmynd dauðans, hvers vegna vér segj-
um um dauðan líkama, að hann sö steindauður, er á sí-
felldri umbreytíngu. Vatnið, loptið og hinir rafurmagns-
kynjuðu straumar verka á hann á hverju augnabliki, og smá-
agnir hans hreifast þannig, þótt þær sýnist hvíla fyrir vor-
um sjónum, að út úr steininum vaxa mosar og jurtir, þær
verða með frumefnum steinsins smátt og smátt að mold,
og í þessari mold vaxa fögur grös og fríðar jurtir, og af
þessum jurtum lifir þú og dýrin, sem þú hefur til fæðu,
Af þessari stuttu og einföldu lýsíngu náttúrunnar vona
eg, lesari góður, að þör hafi skilizt það, að allt líf kemur
frá náttúruefnunum, liggur fólgið í þeim, og verður með
eingu móti frá þeim skilið, því lífið er ekki annað en sjer-
stök afar-margbreytt samsetning náttúruefnanna í ýmsar mynd-
ir, samkvæmt kröptum þeim, er skaparinn lagði í náttúru-
efnin, þá er hann skóp þau í öndverðu. Þessir kraptar nátt-
úruefnanna eru í raunninni eigi annað en eiginlegleikar þeirra,
sem einginn getur frá þeim skilið, nema þau sjálf yrðu
gjörð að eingu, en þetta er óhugsanlegt, þess vegna er og
þessi skoðun á lífinu miklu samkvæmari trú vorri á ódauð-
legleikanum, en trúin á þessum sérstaka lífskrapti, sem séra
1) Hinir nýjustu efnafræðingar hafa nú í mannlegum líkama
fundið ekki færri en 80 efni, af hverjum hvert um sig er gætt vissum
oiginlegleikum eða kröptum, er umbreyzt geta á ýmsan hátt, eptir því
sem samsetning þessara frumefna umbreytist.
19
Magnús og söra Þorsteinn þykjast þekkja svo. vel, og sem
myndar grundvöllinn undir hinu homöopathiska musteri.
Sá er enn einn hlutur, er eg verð nákvæmar að skýra
þér frá, lesari góður, en það er einn sjerstakur eiginleg-
leiki allra náttúruefna, hvort sem þau heldur eru einföld eða
samsett, en hann er sá, að náttúruefnin sameinast alltönd
eptir vissum hlutföllum, og geta ómögulega sameinazt á
annan hátt en eptir eðli því, er samsvarar þessum hlutföll-
um. Hlutföll þessi eru bundin við frumagnir efnanna, og eru
því eins margvísleg, eins og frumefnin eru mörg til, þannig
getur frumefni það, er menn kalla „léfslopt“, og sem samein-
ar sig nærfellt öllum náttúruefnum, sem til eru, ómögulega
gjört þetta, nema það innibindi í sér 8 frumagnir af sjálfu
sér, og gullið þarf að hafa í sör 98 frumagnir, ef það
á að geta samlagazt öðrum efnum. Járnið, sem menn smíða
úr ýmsar myndir, eins og öllum er kunnugt, getur ómögulega
komizt í samband við nokkurt annað náttúruefni, nema það
innibindi í sér 28 frumagnir, og tinnuefnið (silieium), sem
myndar mestan hluta jarðarinnar, og sameinar sig við fjölda
af hinum náttúruefnunum, getur ekki sameinazt öðrum efnum,
nema það innibindi ísör 22 frumagnir. Slíkt hið sama gildir
um öll hin náttúruefnin, og geta hlutföll þessi margfaldazt
á ýmsa vega, og fram koma þar af óteljandi líkamir, dýra-,
grasa- og steinategundir, sem einginn fær upp talið. Þetta
hér nefnda frumagna-hlutfall meðal allra hluta er sannar-
legt náttúrulögmál, sem skaparinn sjálfur hefur veitt efninu,
og sem er Óaðskiljanlegt frá því. Þetta viðurkenna allir
náttúrufræðingar, og þótt sumum þeirra hafi þótt hægra,
að hlutfallatalan væri stærri, en hér er til tekið, þá gjörir
það ekkert glundur, því hlutfallið meðal efnanna raskast
ekkert við það; eg hef hér nefnt hina minnstu tölu þessara
hlutfalla, af því mönnum þykir hún hægust viðfángs í efna-
fræðinni, en þó verða menn jafnan að viðhafa hina stærri
hlutfallatöluna, þegar útreikna þarf hlutfallatölu vatnsefn-
isins,
Sörhver náttúrufræðíngur og efnafræðingur, sem þekkir
9x
20
frumefnin og hlutfallatölu þeirra, verður að kannast við það,
að homöopatian er tómur þvættíngur og öldúngis gagn-
stæð öllum náttúruögum; því segir og hinn nafnkunni
efnafræðingur Liebig (til hvers söra Magnús þó læt vera
að skírskota) um hana á þessa leið: „Hver getur feingið
sig til að trúa, að fjöldi hinna menntuðu manna vorra tíma
st leingra kominn í því, að þekkja uáttúruna og krapta
hennar, en efnafræðislæknarnir voru á 16. öld, þegar hann
verður þess var, að til eru læknar í hundraðatali, sem, þótt
þeir hafi lært við vora háskóla, halda með grundvallarreglum,
sem eru alsendis mótstríðandi allri sannri reynslu og heil-
brigðri skynsemi; þessir menn, sem halda, að verkanir
meðalanna liggi fólgnar í sérstökum kröptum eða hvíleg-
leikum (Qvaliteter), sem við hristíng og núníng komi í hreif-
íngu, og geti meðdeilzt öðrum efnum; þessir menn, sem
halda, að náttúrulögmálið, er einga undantekning hefur,
innihaldi ósannindi um læknismeðölin, sem þeir halda
að aukist að kröptum, eptir því sem þeirra verkandi efni
mínkar“l.
Af þessu getur nú séra Magnús stöð, hvað einhver
hinn merkasti og lærðasti maður vorrar aldar hugsar og
dæmir um „homöopathiuna“ og um hið uppskrökvaða nátt-
úrulögmál, er hann (söra Magnús) er að bera á borð fyrir
landa sína. Líiebig er alþekktur um allan heim meéal lærðra
manna, og einginn getur brugðið honum um, að það sö af
1) Hvo tör paastaae, at Fleertallet af de oplærte, dannede Men-
nesker í vor Tid, staaer paa et höjere Triin i Erkjendelse af Naturen
og dens Kræfter, end det 16. Aarhundredes latrochemikere, naar han
veed, at HMundreder af Læger, som have uddannet sig ved vore Univer-
siteter, hylde Grundsætninger, som trodso al Erfaring og sund Men-
neskeforstand; Mænd der troc, at Lægemidlérnes Virkninger lizge i
visse Kræfter eller Qvaliteter, der ved Gnidning og Rysten kunne sættes
i Bevægelse og forstærkes, og overföres paa uvirksomme Stofler, der tr0e,
at en Naturlov, der ingen Undtagelse har, er usand med Hensyn til
Lægestoffer, idet de antage, at deres Virksomhed kan tiltage med
deres Formindskelse af virksomt Stof. Sjá Chemiske Breve af Justus
Líebig, ny Samling, Kjöbenhavn 1854, Pag. 61 — 62.
21
meðhaldi með allopathiunni, að hann talar svona, hann hef-
ur alvarlega sagt allopöthunum til yfirsjóna þeirra, og bent
mörgum þeirra á réttan veg, og er hver ærlegur allopath
honum þakklátur fyrir það, og tekur við leióréttíngum hans
með gleði. En það er ekki Zíebig einn, sem talar svona
um hómöopathiuna, heldur allir hinir lærðustu efnafræð-
íngar. Sðra Magnús þarf því ekki að vera svo drembilát-
ur af því, að hann þykist vita af einhverjum sérlegum
efnafræðíngum í Leipzig og vítar, sem haldi svo mikið upp
á homöopathiuna, og byrli þeirra frábæru meðöl, því þessir
hans efnafræðíngar eru samvizkulausir umhleypíngar, sem
allt að einu og hann látast vita allt, en vita þó minna en
ekkert, eins og raun gaf vitni í Leipzig fyrir alls eigi laungu
síðan, hvar þeir af tómri heimsku byrluðu mönnum hin
verstu eitur í homöopathiskum sykurkúlum, og sluppu fyrir
réttvísinnar hegníngu, af því þeir þekktu ekki verkanir
efnanna, er þeir voru að byrla fólki. Það væri sannarleg:
bezt fyrir séra Magnús, að nefna aldrei efnafræði, en hvort
sem hann heldur, að eg kunni lítið í henni eða ekki, læt
eg mér liggja í eins löttu rúmi eins og lygasögur þær, er
hann er að lofa löndum sínum um það efni. Sá maður,
sem fer eins með almenníng, eins og hann gjörir, má sann-
arléga vera búinn til alls, og nokkrar skröksögur liggja naum-
ast þúngt á samvizku þess manns, sem hefur líf og heilsu
landa sinna að leikfángi, þar sem hann kemst að, um sama
leytið sem hann ekki skammast sín fyrir að kasta steini á
og niður níða hina beztu lækna, sem uppi eru á vorum
dögum, og talar drjúgt um þessa sína „homöopathiu“, í hverri
hann þó sjálfur er sannur skottulæknir og sýnir nógsam-
lega í riti sínu, að hann aldrei hefur almennilega lesið.
Það hefði verið bezt fyrir þenna norðlenzka vitríng, að
fara minna inn í lífseðlisfræðina (Physiologie), en hann hef-
ur gjört, því þá hefði hann ekki komið því upp um sig,
er rit hans nú ber með sör: það, að hann verður að vera
heldur aumlega að sér í sálarfræðinni, og liggur hún þó
nær hans prestlega kalli heldur en „homöopathian“. Hvað
22
ætli að duglegir útlendir allopathar mundu segja, ef menn
segðu þeim, að út á Íslandi væri klerkur einn, sem þætt-
ist lángtum vitrari en þeir, og væri að inn prenta löndum
sínum þann vísdóm (!!), að allur þeirra lærdómur væri gam-
alt hérvillumyrkur og vitleysa, einkum ef menn bættu því
við, sem þó mun satt vera, að þessi hinn sami prestur,
gæti ekki haldið ræðukorn frá stólnum, nema hann læsi
það upp af blöðum, og væri þar til svo bágloga að sör
í sálarfræðinni, að hann héldi, að hinn svo kallaði léfs-
kraptur og sálin væru sömu tegundar. þetta verður hann
þó að halda, fyrst hann er að samlíkja sálarinnar verkun-
um, reiði, gleði, ótta, 0. s. frv. (sjá bls. 32 í riti hans), á
líkamann saman við smáefnin í homöopathisku skömtunum.
Í barnalærdómnum lærði eg forðum, að sálin væri sá manns-
ins partur, sem ályktaði og hugsaði, og að hún, sökum sam-
bands síns við líkamann bæði gæti haft áhrif á hann og
hann á hana, og við þetta hef eg haldið síðan. Nú heyri
eg þann lærdóm af presti, að sálarhreifíngarnar sðu eins
og margskiptir homöopathiskir skamtar, en hafi þessi efni
í sör (eins og þessi postuli kennir); þá verða sálarinnar
verkanir og hún sjálf líka að vera af efnum, en þetta er,
eins og allir vita, gagnstætt trúnni á sálarinnar ódauðleg-
leika.
Af því, er nú hefur verið sagt, vona eg að lesendum
mínum skiljist það, að allt, sem þessi homöopathiski prest-
ur er að kenna mönnum um veiklun lfskraptarins, sem
undirrót til allra sjúkdóma (sjá bls. 1808 19 í riti hans),
ásamt verkun hinna homöopathisku skamta á þenna léfs-
krapt, er eintómt bull og heilaspuni, enda mundi mig naum-
ast bresta enn þá fleiri ástæður, til að marg-sýna það, þótt
eg ætti í höggi við hina lærðustu homöopatha, sem nú eru
uppi. Eg hefði þá átt því hægra, sem eg þá ætti við hon-
um menntaðri menn að tala, er hljóta áð taka á móti vís-
indalegum ástæðum, sem prestskepnuna vantar lærdóm til
að skilja. Hann má og vera viss um það, að hans lærðu
homöopathar, sem hann er að „citera“ í, eru fyrir laungu
23
síðan marg-hraktir af embættisbræðrum mínum erlendis, og
hafa því, eins og hann, orðið að ráðast á vegginn, þar sem
hann er lægstur, með því að skírskota máli sínu undir
þeirra manna dóm, er þeir vissu, að lítið sem ekkert vit
hefðu á því, og dæmdu því allopt eins og hinn blindi mundi
dæma um litina.
Þar eð eg þykist nú vera búinn að full-sýna fúann í
hinum fyrsta máttarstólpa hins mikla homöopathiska musteris,
þessa höfuð-máttarstólpa, sem á að bera alla byggínguna á
herðum sér, þá mundi nú mörgum þykja óþarfi, að eg gjörði
mör mikið ómak fyrir hinum innviðunum, en samt ætla eg
að fará nokkrum orðum um þá, og tek eg þá í einu lagi
tvo fyrir í einu, sumsð hina aðra grein um „Meðalaskamta-
fræði homöopathanna“, og hina þriðju um „Sannanir fyrir
verkun smáskamtanna“, sem eiga að vera „teknar úr lífs-
og sjúkdómafræðinni, náttúru- og efnafræðinni“ !! (sjá
bls. 21—40).
Höfundurinn byrjar þessa grein sína með því, að láta
oss vita, að þótt eg og aðrir óvitrir allopathar ekki komum
meðalatilbúníngi homöopathanna í höfuð vor, þá sö hann
þó mjög einfaldur !! „Af þurrum meðalaefnum, t. a.m. málm-
um, jarðartegundum, söltum, er tekið eitt gran í dupti og
vandlega núið saman við 99 grön af mjólkursykursdupti“,
ög þetta kallar hann hina „fyrstu þynníng“. „Af þessari fyrstu
þynníngu er nú aptur tekið eitt gran, og núið saman við
99 grön af hreinu mjólkursykri, og er þá komin önnur
þynníng. Af þessari annari þynníngu er tilbúin hin þriðja
á sama hátt og hinar, þannig, að eitt gran af hinni ann-
ari þynníngu er núið saman við 99 grön af mjólkursykur-
dupti, og er þá komin þriðja þynníng“, og þegar búið er
nú að þessu, þá er tekinn vínandi og vatn til hinna ept-
irfylgjandi þynnínganna.
Til þess nú að sýna lesendum mínum, hvað einfalt og
auðvelt þetta er, þá viljum vör taka eptir fylgjandi dæmi,
og það er þetta: ;
24
Eitt af þeim meðölum, sem allopathar og homöopathar
almennt viðhafa, er járn, hverju hinir síðast nefndu — eins
og líka má, ef það er réttilega viðhaft — tileinka margar
dyggðir. Látum oss nú ímynda oss, að herra presturinn
ætli að búa til 3. þynníngu úr járni, og að hann taki þar
til, eins og homöopatharnir eiga að gjöra, Í gran af járni.
Stærð þessa grans svarar til ofurlítillar járnagnar, álíka og
títuprjónshöfuð, og henni á hann að skipta, eptir því sem
hann sjálfur segir, í millíón parta, áður en hann fer að
uppleysa hana. Hana nú, herra pastor! takið þör við járn-
ögninni, þarna er hún, á stærð við meðal- títuprjónshöfuð,
farið þör nú að núa, en til þess þör narrið hvorki mig eða
aðra og gefið oss sykurmola fyrir járn, þá vil eg láta yður
sleppa sykrinu fyrst um sinn, en eg ætla að eins að biðja
yður að láta mig vita af, þegar þér eruð búinn að gjöra
þessa járnögn að hundrað púsund smáögnum, og er þó
þetta að eins tíundi hlutinn af því, sem þér Þykist geta
gjört. Ég skal ekki neita því, að mör þætti gaman að sjá
yður stritast við járnögnina og vita, hvort hún yrði ekki
seig undir morter-stautnum, um það leytið sem þér væruð
búinn að fá úr henni 10 þúsund smáagnir eða hundrað-
asta partinn al því, er þér þykizt geta gjört. Satt að
segja ímynda eg mér, að þótt séra Magnús færi að stauta
járnögnina, sem þó á að vega, eins og hann til tekur, 1 gran,
og er á stærð við títuprjónshöfuð, nú strax, þegar þetta er
skrifað, og væri að, þángað til Norðlendingar lifa þá hryggð-
arstundu, að sjá hann hverfa ofan í moldina, þá mundi
hann aldrei fá henni skipt í 100 þúsund hluti, og því síð-
ur Í millíón smáagnir, eins og hann þykist geta.
Séra Magnús treystir því, að landar hans verði hver-
vetna, sem von €r, gabbaðir á stórum tölum, er þeir alls
einga hugmynd hafa um, og því getur hann máske feing-
ið hina einfaldari af þeim tilað trúa því, að einum dropa
af vökva verði skipt í decillion parta, og að hann geti
gjört þetta með 30.litlum glösum, en það er í rauninni
hið sama, sem hann vildi segja þeim, að einn dropi af
to
(Þið
vökva gæti útþanizt svo mikið, að hann yrði stærri og
meiri ummáls en öll fjöllin á Íslandi. Það er hið sama
sem hann vildi segja við þá: „farið þér með dropann þann
arna og kastið honum í Stórasjó, þegar vatnið er í mikilli
hreifíngu, takið síðan einn dropa úr þessum sjó, látið hann
drjúpa á fíngurgóminn, á yður, og skolið fíngurinn vel í
Þíngvallavatni, þegar sem hvassast er á því, og með þessu
móti verður Þíngvallavatn að mátulega þynntu smáskamta=
meðali. Það getur varla hjá því farið, að söra Magnús
fer sjálfan að svíma, ef hann hugsar nokkuð út í, hvílík
ógnarleg tala deeillionin er, en má ske mannskepnunni sö
ekki um annað að gjöra, en hugsa hverja vitleysuna, sem
vera skal, og koma svo þessum vitleysu-grúa inn hjá lönd-
un sínum, eins og honum er framast unnt.
Eg hef áður sagt, að eitt gran væri hör um bil hið
sama sem byggkorns þýngd, og til þess að lesendur mínir
geti feingið hugmynd um, hvað mikil hrúga að dccillion
byggkorn sé, þá viljum vör fyrst sjá, hvað mörg byggkorn
2
liggi í einni tunnu af meðalbyggi, og munu þeir þá geta
feingið dálitla hugmynd um, hvað ein decillion af byggkorn-
um hefur að þýða. Menn vita af reynslunni, að ein tunna
af byggi á að vega 8 lísipund eða 128 pund. Eitt pund
vegur 82 lóð, en í hverju lóði eru 240 grön eða byggkorna-
býngd; eptir þessum reikníngi verða þá 7,680 grön eða
byggkorn í hverju pundi, og það margfaldað með 128, sem
er pundatalan í tunnunni, sýnir, að í henni eru 983,040 (það
er níu hundruð áttatíu og þrjú þúsund og fjörutíu) bygg-
korn. Setjum nú, að til Íslands flytjist á hverju ári 10
þúsund byggtunnur, þá verða það 9,830,400,000 (það er
níu þúsund áttahundruð og þrjátíu millíónir og fjögur hundr-
uð þúsundir) byggkorna á ári, og ef vör nú ímyndum oss, að
jafnmikið bygg hafi fluzt híngað til landsins í 1000 ár, síð-
an landið byggðist, þá eru þó allir Íslendingar, sem hafa
lifað frá landnámstíð, enn þá ekki búnir að borða meira en
9,830,400,000,000. (það er níu billionir átta hundruð og
þrjátíu þúsund og fjögur hundruð millíónir) byggkorna,
26
sem híngað hafa átt að flytjast, síðan landið byggðist. Ís-
lendíngar eru þar fyrir enn þá fjarska lángt frá því, að vera
búnir að eyða trillion byggkorna síðan landnámstíð, en
þó er þetta ein af hinum lægstu tölum, sem homöopatharnir
nefna, þegar þeir ern að skipta einu grani í quintillion,
seætillion og deeillion staði!!! Söra Magnús talar um, að
eg álíti frumefna-agnirnar (Atomerne) svo ósköp stórar;
þetta er nú eins og önnur hans ósannindi; það hef eg
aldrei sagt, en hitt segi eg, að hvorki hann eða nokkur
homöopath, hvað lærður sem hann á að vera, getur skipt
einu grani Í réllion, quintillion eba deeillion staði, og
þegar hann er að telja löndum sínum trú um það, og læzt
sýna þeim það meó smáglösum, svo hefur hann þá að gabbi,
og inn prentar þeim ósannindi, sem aldrei hafa og aldrei
geta átt sér stað, hvort sem nú heldur þetta kemur af
heimsku hans eða kæruleysi um satt og ósatt. Það lítur
annars næstum svo út, sem þessi góði prestur sé með vilja
að draga landa sína á tálar, að minnsta kosti er aðferðin
með hans 30 glös þannig leidd fyrir sjónir, að hún er auð-
sjáanlega gjörð til að blinda menn, og villa sjónir fyrir
þeim, en hann dregur þó allt of illa skýluna yfir tálsnörur
sínar, og treystir því allt of mjög einfeldni almenníngs í
þessu efni. Látum oss taka hans eigin orð, svo þessi sann-
leiks-postuli geti fallið á sínu eigin bragði, og tálsnörur
hans verði eingum óljósar; hann segir sumsé (bls. 23):
„Til að skipta einu meðalsefni í decillion parta, þarf því
að eins 30 glös, af hverjum hvert fyrir sig tekur 100 dropa
af vínanda, en öllsamtals 3000 dropa. Allir geta nú söð
2
— segir sannleiks-postulinn — að eptir þessum tilbúníngi
er í hverju grani eða dropa af 1. þynníngu "00, Í 2.
1/0,000, Í 8. "i:000:000, Í 6. billíónasti, í 9. trillíónasti?,
í 12. quadrillíónasti og í 30. deeillíónasti partur af hinu
upprunalega meðalsefni“.
1) það er skrítið, hvað blessaður presturinn hleypur hör á hundavaði,
og hvað löttfættur hann erað hlaupa frá quadrillion í decillion,
en það er þó eigi svo stuttur vegur, þegar hann er mældur, sem hann heldur.
27
Þetta er nú öldúngis hið sama, sem að herra prestur-
inn skyldi segja við menn: „Þarna er einn dropi, bræður
góðir, farið með hann fyrir mig og kastið honum í Mývatn;
takið síðan einn dropa úr Mývatni, og látið hann í Stórasjó,
og er hann af vindinum er vel skekinn saman við vatnið,
þá skuluð þör taka einn dropa úr Stórasjó og láta í Þíng-
vallavatn, og er það þá mátulega þynnt, til að vera homöo-
pathisk meðöl“. Látum herra prestinn neita þessu, ef hann
getur, og mun þá verða einhver vegur til að sýna mönnum,
að Stórisjór, Þíngvallavatn og Mývatn naumast geta inni-
haldið meira en deeillion dropa af vatni, en á hinn bóg-
inn ætlum vér varla nokkurn mann svo heimskan, að hann
geti ímyndað sör að einn dropi geti útþanizt um allt Mý-
vatn, hvað þá heldur meira.
Að öðru leyti þarf herra presturinn ekki að segja mig
„ljúga“ það (sjá bls. 26), að homöopatharnir álíti krapta
meðalanna aukast, eptir því sem efnið mínkar, því það vita
allir, sem dálítið þekkja til þeirra, að þeir gjöra, og því
voru norðanbændurnir - hans forðum líka að tala um „sál-
ina“ í meðölunum hans; hann segir og sjálfur (bls. 27),
„að hversu smátt sem einu efni sð skipt, hljóti þó hinn.
minnsti partur þess að hafa líka verkunar-eiginlegleika
og efnið sjálft“. Verður þá efnunum skipt í hið óendan-
lega, herra pastor? Vatnið uppleysir marga hluti, eins og
allir vita, og telst því meðal hinna uppleysandi meðala, er
vér svo köllum, allopatharnir, en gaman þætti mér að sjá,
hvað það væri, sem söra Magnús gæti uppleyst með trillí-
ónasta parti af einum dropa vatns. Herra presturinn ætti
heldur ekki að vera svo reiður yfir því, að hann heldur,
„að mör kunni að takast á endanum, að koma mönnum til
að brúka meðöl í matarstað“. Eg held bæði hann og vér
allir hinir gjörum það, og höfum gjört það alla vora æfi,
eða veit þessi lærði maður ekki af því, að vör höfum heilan
flokk meðala, sem heita nærandi meðöl (nutrientia), t. a.
m. Salep, hveiti og þar á meðal einkum hveiti það, er
„maranthamél“ kallast, auk margra annara matvæla, svo
28
sem eru fjallagrös, fjörugrös, hvannarót, ýmsar sykurteg-
undir og kryddjurtir, að eg ekki tali um ýmislegar maukteg-
undir (Gelee) „kjötextrakt“ og kjötsúpur, er opt sýna sig
sem hin Kröptugustu meðöl, jafnvel hjá þeim sjúklíngum,
er forgefins hafa reynt hinar almáttugu homöopathisku syk-
urkúlur!!
Það er annars nokkuð hlæilegt að heyra mann, eins
og blessaðan prestinn, sem auðsjáanlega einga hugmynd
hefur um, hvað meðala-, lífs- og náttúrufræði er, vera að
spjalla og skeggræða um hluti, er hann alls ekkert skyn-
bragð ber á, enda verða og úr því heldur stórkostlegar vit-
leysur, og það ekki hvað minnst, þar sem hann fer að tala
um frumefnin og skiptíngu þeirra. Þannig segir hann t. a.
m. bls. 39. „Úr teníngs- þumlúngi vatns verða 1728 ten-
íngs-þumlúngar af gufu, og hvílíkt afl hefur hún ekki?“ Hvað
mikið afl haldið þér hún hafi, herra pastor? og hvað stór
haldið þér þessi teníngur mundi verða, ef hann yrði stækk-
aður deeillion sinnum? Eg hef beðið herra yfirkennara
B. Gunnlögsen að reikna út flötinn á honum fyrir mig,
og er hann fór að reikna, komst hann bráðum að því, að
flöturinn af honum kemst ekki fyrir í sólkerfi voru; hvern-
ig lízt yður á molann, herra pastor? Herra Gunnlögsen tók
þá til millibilið millum sólarinnar og pólstjörnunnar, en
það varð einnig mikils til of lítið, og endalyktin varð, að
flötur teníngsins verður á stærð við millibil pólstjörnunnar
frá sólu, margfölduðu 6 sinnum. Þér sjáið á þessu, herra
pastor, að þessi „deeillion“ er ekki með öllu svo viðráðan-
leg, eins og þér haldið, og þegar þör eruð að inn prenta
löndum yðar, að þér getið skipt einu grani og einum dropa
í „deeillion“ staði, þá getið þér eins vel talið þeim trú
um, að þér gætuð tekið hið stærsta fjall, sem til er á
Íslandi, og stúngið því í vasa yðar, eða látið allt Ís-
hafið í hattinn yðar; því hvort um sig er jafn-satt. Mig
varðar svo sem lítið um, hvað Mayerhofer og Segnin hafa
uppdiktað, yður og öðrum fáfræðíngum til ásteytíngar, en
hafi þeir sagt, að þeir með sjónauka, sem stækkaði 75 falt,
29
hafi söð kopar- eða salmiakagnir úr einu grani, eptir að
búið var að skipta því í „trillion“, „quadrillion“, og „quin-
tillion“ staði, þá er það álíka satt, og ef þeir hefðu þógzt
sjá títuprjónsliöfuð upp í túnglinu; hvorttveggja er alsend-
is ómögulegt, og getur ekki átt sör stað.
Þegar herra presturinn um sama leytið, sem hann er
að tala um smáagnir, sem eigi eru til, og verkanir þeirra,
neitar því, að mannleg skilníngarvit geti orðið vör við
lopteitur-tegundir (Miasma), þá sýnir hann bezt, hvað bág-
lega hann er að sör í sjúkdómafræðinni. Veit hann þá
ekki, góði maður, að lopteitur-tegundirnar eru til, ekki að
eins í granatali, heldur að öllum líkindum í mörg þúsund
pundatali, og vilji hann sannfærast um þetta, þá er honum
bezt að fara suður að Nílfljótinu, þegar pestin er komin
þar í algleymíngi sínum, eða skoða stóru staðina tilsýndar,
þegar Choleragufan sveimar yfir þeim, og finna dauninn,
sent er Í litlum herbergjum, þar sem margir liggja í land-
farsótt, og sóttlyktin er megn. Verði hans næmu skilníng-
arvit ekki vör við neitt á þessum stöðum, þá getur hann
reynt að vega „Ozonið“, kvefefnið, í loptinu, þegar kvef-
sóttir gánga. „Hann þykist, hvort sem heldur er, nógu vel
að sér í efna- og kraptafrætinni, og ef hann, eins og hann
segir, getur fundið dauninn af einu grani af „Moscus“, sem
hefur legið í einu herbergi í 20 ár, þá hefur hann slíkt
lyktar-afl, sem eingum manni hefur verið gefið, síðan ver-
öldin byggðist.
Svo sem lítið dæmi upp á, hve rotinn og gamall þessi
þriðji máttarstólpi í musterinu sé hjá herra prestinum, vil
eg geta þess, að um sama leytið, sem hann ímyndar sér,
að efnin í vatninu eyðileggi eða „neutraliseri“ hvert ann-
ars verkanir, þá segir hann, að til söu margir málmvatna-
heilsubrunnar, og nefnir Wildbad og Gastein, sem efnafræð-
in ekkert geti fundið í, og sýnir einúngis með þessu, að
hann og hans homöopathar vita ekkert af, að þessir heilsn-
brunnar eru nákvæmlega rannsakaðir fyrir nærfellt 30 árum
30
síðan, bæði af barún Berzelius og fleirum öðrum efnafræð-
íngum.
Málmvatnið í Gastein er svona samsett:
Brennisteinsúrt kali ..... 0,055
—— „ natron ...'. <....-1,495,
Matarsalti sr Sets TR -..0,340 -
Kolasýrð magnesía .. ... . 0,035
I kalks .y0.50,997
Rolasýrt járn ts 44, 3. 330)092
eirjþr ss 00,050
ýr 0,000
Wildbad hefur mikið líka samsetníngu þessu vatni, og
mun herra prestinum, eða flestum lesendum, sem von er,
lítið gagn að, þótt eg færi að rita hana upp; hitt væri lángt-
um fróðlegra, ef séra Magnús vildi sýna og sanna, hvern-
ig þessi efni færu að afmá hvert annars verkanir, eins og
hann segir um efnin í vatninu (sjá bls. 28).
Eg verð þá loksins að sýna lesendum mínum hinn 4.
máttarstólpa prestsins, en það er: „Eptirgrennslun homöo-
pathanna um sjúkdómana (segir presturinn) er ólík að-
ferð margra allopatha, sem þykjast vita, en vita þó ekki,
um eðli og næstu orsök sjúkdómanna. Nú mætti búast
við, að menn í þessari grein feingju nákvæma skoðun á
sjúkdómafræði homöopathanna, en þetta er þó eingan veginn
svo, því þessu hefur prestskepnan sleppt fram hjá sér,
heldur fá menn í þess stað hinn argasta þvættíng um eitt-
hvað, sem honum þóknast að kalla allopathiu, með ráng-
færðum „citötum“ eptir lækna, sem flestir eru dauðir fyrir
rúmum mannsaldri síðan. Sjálf mannanöfnin eru svo af-
bökuð, að menn geta naumast ráðið í þau, og allt ber vitni
um, að öll greinin er afgömul þvættitugga, sem eingri átt
nær, smíðuð af einhverjum hálf-ærðum homöopath fyrir full-
um mannsaldri síðan, en hör gróðursett af séra Magnúsi.
Aðalinnihaldið er, að homöopatharnir viti allt, en þó er
allt af dregin einhver skýla yfir undirstöðuna fyrir þeirra
1) Sjá Vetter, Heilquellenlehre, Berlin 1845, II. Band, Pag. 254.
3l
vizku; allopatharnir þar á móti eiga að vera flón, sem ekk-
ert vita, og einga undirstöðu hafa, og þó lýsir maðurinn,
sem skrifar þetta, því yfir í hverri línu, að hann hefur ekki
hina minnstu hugmynd um allopathiuna, eins og hún er
á vorum dögum.
Maður getur ekki varið sig hlátri, þegar maður les
annað eins og þetta (bls. 43): „Alla sjúkdómafræði hafa
læknarnir híngað til byggt á efna- og náttúrufræði, á gömlu
frumefnafræðinni eða lífsfræðinni“; eða þá (bls. 47): „Með-
ferð allopathanna á giktinni hefur glögglega sýnt og sann-
að, hve lítið þeir þekkja eðli hennar. Hér eru hinir frægustu
læknar hver á móti öðrum, eins og dagur og nótt“, 0. 8.
frv., og svo er grautað saman nöfnum manna, sem hafa lif-
að nærfellt sinn á hverri öld, og þeir látnir rífast um þetta
og ýmislegt annað. Boerhave, Hoffmann og van Swieten
eru látnir vera að rílast við suma ýngri lækna, sem aldrei
hafa verið til, t. a. m. Chowlart og Cholmers!!; og til
þess, að þetta verði allt sem verst útlítandi, er því logið
upp, áð núverandi allopathar fylgi hinni gömlu efna- og
eðlisfræði, jafnvel þótt það sé hverjum lærðum manni kunn-
ugt, að ýmsir læknar, sem nú eru uppi, hafa hjálpað til,
að mynda hina nýju efnafræði, og að margir af þeim, og
þar á meðal einkum ýmsir frakkneskir, þjóðverskir og enskir
læknar, hafa með heppni og eindrægni sýnt og sannað,
hvernig bæði gikt og ýmsir aðrir sjúkdómar verða lækn-
aðir á áreiðanlegan hátt eptir efnafræðislegum reglum".
Eg hef enn þá aldrei söð nokkurn hlut hér á landi,
sem líkist þessum graut og þvættíngi, og eg kalla séra
Magnús hafa meira en meðal-ósvífni, að hann þorir að
bjóða löndum sínum slíkan samtvinníng af vitleysum og
lygi; en maður þessi má vita, hvað hann má bjóða sör á
vorum dögum; hann veit vel, að hann á hliðholla menn
nærri sér, sem ekkert skipta sör um hið sanna í þessu efni,
1) Sjá Dr. Prout, On stomach and urinary diseases, og Dr. Gol-
ding Birð, On urinary deposits, London 1853. Hver verk nú um stundir
eru mjög nafnfræg og almennt viðurkennd meðal allra lækna.
32
ef að þeir að eins um stundarsakir geta áunnið sér kjapta-
lof einfaldrar og afvegaleiddrar alþýðu. Eg hef fyrir mig
og embættisbræður mína ekkert á móti því, að söra Magn-
ús verði sör til eilífrar vanvirðu með slíkum ritum; hann
hefur trúlega verðskuldað það, enda er rit þetta nægilegur
minnisvarði fyrir hann, meðan það er einhverstaðar til hör
á landi. Látum bæti hann og séra Þorstein ímynda sör,
að þeir séu bæði lærðari og betur að sör en allir allopa-
thar, sem nú ern uppi, þeir sem trúa því, mega vera hin
mestu flón, sem uppi eru á vorum dögum, og þeir sem ekki
trúa þeirra heimsku-sérgæðíngs-bulli, munu á ritum þeirra
sanna Salómons orð: „Sjáir þú einhvern mann, sem þyk-
ást ósköp vitur, þá vittu, að hann er dáranum heimsk-
ari“.
það, að mér er ómögulegt að hrekja alla þá: lygi og allar
þær rángfærðu sögur, sem þessir góðu prestar bera upp á
lækna þá, er uppi eru á vorum dögum, nema eg mætti
eiga von á því, að almenníngur þekkti alla læknasöguna
(Medicinens Historie), en með því eg get ekki vænzt þess,
þá þyrfti eg fyrst að skýra frá allri. læknasögunni, eins og
hún er komin á vorum dögum, og með því slíkt er ókljúf-
andi fyrir mig á þessum stað, þá verð eg að láta mér nægja
með, að lýsa því opinberlega yfir, að allt það, sem séra
Maynús Jónsson og séra Þorsteinn Pálsson hafa skrifað
nm allopathiuna í ofan nefndum ritlíngum þeirra, er ein-
tóm ósannindi og þvættíngur, sem að eins ekki einúngis
sýnir, að þeir með öllu eru ókunnir læknisfræðinni, sögu
Eg vona, að allir skynsamir og óvilhallir menn sjái
2
hennar og framförum, heldur þar á ofan ber ljóst vitni
um, að þeir — þótt skömm sé frá að segja — ekki fyrir-
verða sig, að leiða landa sína afvega í því efni, er almenn-
íngur einga grundaða meiníngu getur um haft. En það
ætla eg þó að hverjum skynsömum manni þyki vera fullt
í borið, þar sem séra Magnús í endanum á þessari grein
segir: „Það er óþarfi að til greina fleiri dæmi því til
sönnunar, að læknar þekki ekki eðli sóttanna.“!! Huggið
yður við það, góðu rétttrúuðu Noróðlendíngar, að þótt vör
33
allopatharnir ekki eigum að þekkja sjúkdóma, þá hafið þér
hjá yður þessa blessuðu homöopathisku ljósbera, sem, jafn-
vel þótt þeir þekki ekkert til mannlegs líkama, já, ekki einu
sinni partana í litlafíngrinum á sjálfum sér, þó hafa þá
dýpt vizkunnar, að þeir þekkja alla sjúkdóma niður að
neðsta grunni!!!
Hvað holdsveikinni við víkur, sem séra Magnús hefur
verið að hnýta aptan í grein þessa, þá mun sá sjúkdómur
naumast verða honum mikil heilla-þúfa um að þreifa. Eg
á ekki svo örðugt með, eins og hann heldur, að færa rök
til þess, að skoðanir mínar um hana muni vera á góðum
rökum byggðar, og til að sýna honum ofan á það, læt eg
prenta hör álit óvilhallra manna um sjúklíng, er nýlega hef-
ur verið undir minni umsjón með veiki þessa, en það hljóð-
ar svona!
„Við undirskrifaðir vitnum hör með, að þá er við í
fyrra haust sáum Þorkel Jónsson frá Lágholti í Reykjavík-
ur-umdæmi, þá var hann svo þúngbúinn og yfirkominn af
holdsveiki, að okkur þótti eingin von, að hann mundi geta
geingið í skiprúm á vertíðinni, og að við einúngis eptir
ráðum Dr. Hjaltalíns lötum til leiðast, að segja honum
ekki upp skiprúminu; undir vertíðina hafði sjúklíngur þessi,
mót von, tekið slíkum framförum, að við gátum ekki ann-
að en álitið hann næstum albata. Við verðum því að bera
það fram, nær sem krafizt verður, að sjúklíngur þessi hef-
ur undir læknismeðhöndlun Dr. Hjaltalíns tekið miklum
ósiðvanalegum framförum, og virðist oss það mikið gleði-
efni og hugfrói fyrir alla, er þjást af þessum illartaða sjúk-
dómi, að vita, að það gefast þó meðöl og lækníngamáti, er
megna að sigra hann.
Litlaseli 22. September 1857.
Ó. Steingrímsson, S. Steingrímsson, Jón Steingrímsson,
Guðmundur Hannesson, Jakob Steingrímsson, Pétur
Gíslason.“
Eg fullvissa herra prestinn um, að eg gæti komið með
fleiri slík skýrteini, ef eg vildi eða þætti það á miklu standa,
3
34
og eg, mundi naumast teljast undan, að reyna mig við hann
bæði við þessi og önnur hér innlend veikindi, ef tæki væri
á því, t. a. m. á spítala eins og erlendis. En hann mun
geta sýnt nyrðra, hvað lángt hyggindi hans nái, bæði í
þessum og ögrum veikindum, að minnsta kosti í munnin-
um; homöopatharnir hafa híngað til verið frakkastir í hon-
um, einkum við almenníng, sem þeir vita, að ekki ber neitt
skynbragð á læknisfræðislegar ástæður og læknisfræðis-rit;
það er fyrirgefanlegt, þótt alþýðan hneigist til þeirrar trúar,
sem prestarnir eru að innprenta henni, því hún á bágt með
að trúa því, að þeir menn, sem eiga að vera hennar sann-
leikspostular, muni innræta henni ósannindi, hjátrú og hö-
giljur.
Hvað hinni 5. grein í riti séra Magnúsar við víkur,
sumsð þeirri, „að homöopathian sé að út breiðast þrátt fyrir
ofsóknir allopathanna, þá mun eg svara henni nákvæmlega
í „Nýjum Fölagsritum“, um leið og eg svara herra studio-
sus Arnljóti Ólafssyni upp á hið sama efni; eg vil hér ein-
úngis geta þess, að bæði hefur söra Magnús og Arnljótur
í ritum sínum fært hinar beztu sannanir fyrir því, hve yfrið
fáa áhángendur homöóðpathian hefur í samanburði við allo-
pathiuna, því þegar þeim í allri norðurálfu heims ekki hef-
ur tekizt að tína upp meira en nokkur hundruð homöopa-
tha, að öllum skottulæknum með töldum, og menn vita, að
öll norðurálfan hefur nærfellt tvær millígnir af allopathisk-
um læknum, þá er tala hinna fyrri á borð við allopathana
eins og dropinn í hafinu, enda er það hverjum menntuð-
um manni kunnugt, að homöopathian allt af er að komast
í meiri og meiri fyrirlitníngu meðal hinna siðuðu þjóða;
og það mun varla vera sá hjátrúarflokkur til í heimi, er
telji jafn-fáa áhángendur sem homöopathian, nema ef það
skyldu vera Mormónarnir. Sá má vera lítið kunnugur
heiminum, og jafnvel hinum menntuðu löndum, sem ekki
veit af því, að alls háttar hjátrú á sér hvervetna stað, og
hefur fleiri eða færri áhángendur, jafnvel stundum þar, er
menn skyldu sízt hugsa. Spákerlíngar og slíkt rusl finnst
3ð
enn þá í hópatali, ekki einúngis í stórbæjum, og hjá ein-
staka hjátrúarfullu heldra fólki, heldur og jafnvel við ein-
stöku konúngshirðir. Á Einglandi, þar sem naumast þrír
fjórðu partar á landsbyggðinni eru læsir eða skrifandi að
vitni Einglendínga sjálfra, og þar sem þess vegna mörg hjá-
trú, þrátt fyrir hinn mikla lærdóm í stöðunum, er drottn-
andi, hefur homöopathian þó með sárlítilli heppni reynt
að ryðja sér til rúms, og er öldúngis fordæmd af öllum
hinum lærðustu mönnum þar í landi, sem hjátrúarfull vit-
leysa, er ekki bjóði neinum svörum; en á Þýzkalandi, þar
sem Hahnemann byrjaði að prédika fyrir 60 árum síðan,
hefur henni á seinni tímum stórum hrakað aptur á bak.
Hér á Norðurlöndum, Danmörku, Noregi og Svíaríki,
finnast nú að eins 5 homöopathar, sumsé 4 í Danmörku,
og 1 í Svíaríki, en einginn í Noregi, en fyrir 10 árum
var tala þeirra tvöfalt stærri. Nú má hver, sem vill, trúa
því fyrir mör, að tveir prestar á Íslandi sðu betur að sör
í læknisfræði en hinar 8 þúsundir allopathiskra lækna, sem
nú eru uppi hér á Norðurlöndum, og viti betur hvað fram-
förum læknisfræðinnar líður en þeir; eg verð að álíta hvern,
sem trúir því, hálfvitlausan, hversu opt sem séra Magnús
eða stra Þorsteinn eru að stagast á því, og þó hefur sá
síðast nefndi ekki fyrirorðið sig að setja þessa vísu framan
á bæklíng sinn: „ — — heimskíngjanna háttur þver heimsk-
una við að búa.“ Jál jál söra Þorsteinn, það er bágt fyrir
öll Norðurlönd að stynja undir heimsku átta þúsund allo-
patha?? og sannarlega er Ísland lukkulegt, að það á í eigu
sinni tvo góða og gilda homöopathiska ljósbera !!
Eg ætti þá að minnast dálítið á bækling séra Þor-
steins, en eg ætla að vera heldur stuttorður, því eg vona,
að allir lesendur mínir sjái, að hann er öldúngis byggður
á sömu máttarstólpum sem hið fyr nefnda „musteri“ séra
Magnúsar. Meiningin í báðum þessum bæklíngum er öll
hin sama, ástæðurnar hinar sömu, og orðin víðast nærfellt
hin sömu. Það sem hrekur annan af þessum bæklíngum,
9
36
hrekur því báða, og eg vil hér að eins setja fáein dæmi
úr riti séra Þorsteins, er nógsamlega sýna, að hann talar
um hlut, er hann alls ekkert skynbragð ber á.
Til að sýna þetta í stuttu máli, verð eg fyrst að geta
þess, að á 35. blaðsíðu í riti söra Þorsteins stendur: „En
nú hefur einginn dauðlegur maður enn getað uppgötvað
eðli sjúkdómsins“. Höfundurinn viðurkennir þá, að hvorki
homöopathar eða allopathar þekki eðli sjúkdómanna. Um
homöopathana á þetta sér víst stað, og því geta þeir heldur
eingan sjúkdóm læknað nema af tilviljun. En allopathian
getur elKlki viðurkennt þetta, því það væri að neita sín-
um eigin augum; vér allopathar vitum vel, t. a. m. að
bleikjusótt (Blegsot) á fólki kemur af því, að það vantar
járn í blóðið, og því getum vér áreiðanlega læknað sýki
þessa með járnmeðölum; vér vitum vel, að bólgusóttir koma
af ólgu í blóðinu, og því getum vér opt fyrirbyggt þær
með blóðsólgu-eyðandi meðölum; vér vitum, með fullri vissu,
að gikt og steinsjúkdómar koma af ýmsum söltum og sýr-
um, er safnast fyrir í blóðinu, og því getum vér eytt þeim
og fært þau út úr líkamanum, ef vorra ráða er leitað í tíma,
og þeim réttilega fylgt; vér vitum að ýms ormaveiki kemur
af lifandi dýrum innan í mönnum, hvar til fræið hefur opt
komið utan að, og vér vitum, að ef vér drepum þessi dýr,
sem opt tekst, þá hætta verkanir þeirra. Þannig getum
vör nú — þökk sé hinni nýjari allopathiu -— komizt að
undirrót og eðli flestra sjúkdóma, og ef vér höfum fundið
eðlið og undirrótina, þá tekst oss hvervetna að sigra þá.
Það er einkum í þessari þekkíngu á eðli sjúkdómanna,
sem allopathiunni á seinni árum hefur farið svo mikið fram,
og því er lækníngamáti hennar allt af í framförum.
Eg vil spyrja hvern heilvita mann, hvort hann haldi,
að hann geti ráðið nokkuð við þann hlut eða viðburð,
hvers eðli hann ekki þekkir. Er það ekki sjálfsagt, að menn
þurfa að þekkja eðli hlutanna, ef menn ætla að geta komið
við nokkurri skynsamlegri meðferð við þá? og þegar séra
Þorsteinn játar það sjálfur, að hann og hans miklu læri-
97
feður þekki ekki eðli (það er náttúru, uppruna og innstu
rætur) sjúkdómanna, þá verður hann sjálfur, ef hann
er með heilbrigðri skynsemi, að játa, að hann og þeir tali
um hluti, er þeir einga þekkíngu hafa á, og bíður þá slíkt
hjal, eins og allur hans bæklíngur, eingra svara. Hann
gjörir bæklínginn með þessu það, sem hann í raun og veru
er, að eintómu rugli um hluti, er hann sjálfur ásamt hans
homöopöthum játar, að hann ekkert skynbragð beri á. Söra
Magnús fór þó allt „fínna“ í þetta, því hann lét sér nægja,
að segja, að allopatharnir þekktu ekki eðli sjúkdómanna,
en séra Þorsteinn stígur feti framar og segir, að homöo-
patharnir þekki það heldur ekki, en þannig hefur þó söra
Þorsteinn sagt það satt um homöopathana, sem séra Magn-
ús hefur fellt undan, því hann vill gjöra þá enn vitrari, en
þeir vilja vera sjálfir.
Að öðru leyti er það að segja um þennan mikla Giin-
ther, semsöra Þorsteinn er að taka vizku sína úr, að hann
á Þýzkalandi er álitinn hálf-vitlaus, og svo illa að sér
í læknis- og meðalafræði, að hann ber ekkert skynbragð á
hvorugt. Þetta sýnir sig og í hverri grein í ritkorni séra
Þorsteins, svo sem t. a. m. bls. 6, þar sem verið er að
tala um, að meðölin verði að eiga einhvern „skyldugleika-
svip við sjúkdómana“í; þetta bull sem einga meiníngu hef-
ur, er svo fráleitt allri skynsamlegri hugsun, að það er
auðséð, að maðurinn skilur ekki sjálfur það, sem hann er
að - hugsa og skrifa. Á sjúkdómafræðinni er hinn sami
ruglíngur, því sjúkdómarnir ern látnir vera tóm einkenni
(Symptomer), en ekkert er tekið tillit til eðlís þeirra og
uppruna, en þetta er þó undirrót allrar sannrar læknis-
fræði, og þar getur eingin önnur sönn undirstaða gefizt.
Um lífsafla-þvættíng homöopathanna hef eg áður talað,
og þarf því ekki að svara því, sem stendur á bls. 4 og
víðar hjá séra Þorsteini um þetta þeirra skapaða lífsafl;
það vita allir, að það er ekki til í þeim skilníngi, sem
þeir taka það, og því fellur öll þeirra byggíng, jafnvel strax
á því, um sjálfa sig. Lífið er ekkert afl eða kraptur út af
38
fyrir sig, heldur er það samteingíng ótal efna með þeim
Óaðskiljanlegum öflum í ýmsar myndir, allt eptir þeirri reglu,
er skaparinn setti í öndverðu, og því sagði herra B. Gunn-
lögsen: „— — sagðan krapt um síð og ár setur í allskyns
myndir“; en hann“lætur krapt og efni vera hið sama, og
því er skoðun hans sjálfri sér samkvæm og heimspekileg.
Þegar þessi ruglaði herra Giinther, og söra Þorsteinn
í hans orða stað, er að færa homöopöthum það til gildis,
að þeir eigi að við hafa (bls. 19) óblandin meðöl, einföld,
þá er þetta tómt orðaglamur, sem sýnir, að þeir ekki sjálf-
ir þekkja efni þau, er þeir við hafa, því allar þær jurtir,
er þeir látast brúka, eru mjög samsettir líkamir, og eins
er um vökvana, sem þeir látast pressa af jurtunum, því
allt þeirra samsull miðar til þess, að villa sjónir fyrir al-
menníngi með einhverjum hégiljum og „tiktúrum“, sem eiga
að vera svo ósköp lærðar, en sem eru af sömu rót og töfra-
reglurnar forðum, á meðan alþýðan var á tálar dregin af
göldrum og fjölkýngi. Þessu líkt má finna á bls. 22, þar
sem verið er að búa til einhverja ímyndunarflækju úr
„verkunum meðalanna, sjúkdóms- og viðspyrnu- einkennun-
um“, og á bls. 28, þar sem verið er að tala um að „hefja léfs-
aflið á beinan hátt“, og bls. 31, þar sem Doppler í Prag
á að hafa sýnt, að „deeillionföld þynníng úr grani fái sör-
lega verkun við eitthvert handbragð“, o. s. frv.; þess háttar
vitleysur eru, eins og prof. Headland á Einglandi! nýlega
hefur sagt, svo fjarlægar allri heilbrigðri skynsemi, að þær
bjóða eingum svörum, því það er eins og einhver vildi
standa á því fastar en fótunum, að úlfaldanum mætti koma
í gegnum nálarauga, eða menn gætu tekið alla veröldina,
og innibyrgt hana í lófa sínum. Eg hef áður sýnt, hvílík
1) An Essay on the action of Medicines in the System, by prof.
Headland, London 1855. þetta verk er álitið hið nýjasta og bezta, er
nú sé til, um verkanir meðalanna, og því var það af enska heilbrigð-
isráðinu gjört að verðlaunariti. Í því stendur blaðs. 42 kafli um ho-
möopathiuna, og segir höfundurinn, „að vitleysur hennar nái
eingri átt, og bjóði eingum svörum, heldur en þær
kæmu frá vitlausum mönnum“.
39
ógnarleg tala deeillionin er, og sá maður, sem heldur, að
einni byggkorns-þýngd verði skipt í dccillion staði, hlýtur
annaðhvort ekki að vita, hvað hún hefur að þýða, eða vera
vitlaus, ef hann álítur það mögulegt.
Af þessum ástæðum, er nú eru taldar, get eg ekki
fundið mig skyldan til að svara ritkorni séra Þorsteins
framar, en hör er gjört. Það notar lítið, að eiga tal við
menn, sem annaðhvort ekki vilja eða ekki geta tekið skyn-
sömum ástæðum, en geti söra Þorsteinn tekið þeim, þá
má hann af því hör sagða sjá, að þetta lærða (?) rit hans
er svo hrakið og niður brotið í þessu, er hér hefur verið
sagt, að það þarf ekki meira með.
Að lyktum verð eg að fara nokkrum orðum um nið-
urlagið í bæklíngi séra Magnúsar, þar sem hann segir, að
hann í dómum sínum um allopatha hafi borið fyrir sig
orð merkustu lækna. Þetta er nú svo frábær ósannindi,
að í öllum bæklíngi hans finnst ekki nefndur einn einasti
af hinum merkustu læknum vorrar aldar; sumir þeir, sem
hann nefnir, eru frá öldinni, sem leið, og allmargir lángt-
um eldri. Þó væri þetta þolanlegt — því maðurinn sýnir
það alstaðar, að hann þekkir alls ekkert til sögu læknis-
fræðinnar, og gætu menn því virt honum það til vorkunar —,
en hitt er verra, að hann rángfærir orð þeirra, og heim-
færir þau upp á allt annað efni, en höfundarnir hafa til
ætlazt. það er svo sem auðvitað, að eins og öllum dug-
legum læknum er og hefur verið umhugað um það, að vís-
indum þeirra gæti farið fram, svo fundust og einkum á
fyrri öld, á meðan lækning allra innvortis sjúkdóma var
mjög skammt á veg komin, ýmsir læknar, sem voru að berja
í brestina með það, er þeim þótti á vanta, einkum á með-
an undirstaðan fyrir eptirgrennslun á eðli sjúkdómanna
stóð á veikum fæti, en það er svo lángt frá, að þessir
menn væru að taka homöopathiuna fram yfir allopathiuna
— „sem þeir og heldur ekki gátu, þar eð hún var ekki
upp komin, er þeir rituðu —,að þeir fáu af þeim, sem hafa
40
þekkt hana í fæðíngu hennar, þótti hún vera nokkurskon-
ar hjátrú, sem ekki væri nærri komandi. Þannig virðist
mér, að séra Magnús þurfi naumast að vera að stæra sig
af dómi Hufeland's gamla um homöopathiuna, því hann
sagði, eins og séra Þorsteinn einnig hefur um getið,! „að
hún væri gröf vísindanna“, og mun hinni örgustu hjátrú
ekki geta orðið gefinn verri dómur. Svona er og dómur
allra hinna merkustu lækna, er uppi eru á vorum dögum,
um homöopathiuna, og það er einmitt þessi dómur, en ekki
gamlar aðfinníngar allopathanna við sjálfa sig, sem stendur
óhrakinn í árbókum læknisfræðinnar, og hefur hann þó goll-
ið hátt og lágt nú um hálfa öld. Dóm hins merkasta efna-
fræðíngs, Liebig's, sem séra Magnús einnig ætlar að láta
vitna sör í vil, geta lesendurnir séð hér að framan, og þarf
því ekki meira um hann aðtala, en umséra Magnús sjálfan
er það að segja, að það er auðsöð á öllu, að hann þekkir
alls ekkert til þeirra lækna, er á þessari öld hafa unnið
að framförum læknisfræðinnar; þeir eru hvergi nefndir, það
er eins og þeir væru ekki til, og þó má finna nöfn og
gjörðir þeirra í flestum nýjari lækníngabókun.
Nú með því blessaðir norðlenzku prestarnir eru svo
báglega að sér, að þeir þekkja ekki einu sinni svo mikið
sem nöfn þeirra merkislækna, er meira og minna hafa hjálp-
að til, að mynda hina nýju læknisfræði, og vita þess vegna
alls ekkert um rit og gjörðir þeirra, þá vil eg gjöra þeim
það til gagnsmuna, ef þeir skyldu einhvern tíma vilja snúa
aptur, að rita hör nöfn þeirra, ásamt þeim af bókum þeirra,
er helzt mega þeim að gagni koma.
Á Þýxkalandi eru þessir hinir merkustu læknar á vor-
um dögum:
Rokitanzsky, Wallach, Walther, Carus, Valentin, Jo-
hannes Miiller, Seherer, Siebold, Martius, Siebert, Nas-
se, Canstatt, Chelius, Micahelis Eisenmann, Roser,
Hers, Beger, Rust, Heidenreich, Klencke, Hert-
vig, Siebenhaar, Wunderlich, Lessing, Cohen, Locbel,
Tj Sjá rit söra Þorsteins, Homöopathian á borð við Allopathiuna o.
s. fry., bls. 30.
41
Rösch, Albers, Griesinger, Heyfelder, Budge, Selur,
Baumgörtner (hans lækníngahók er útlögð á dönsku af
Trier), Naumann, Neumann, Kíwisch von Rotteran, Henle
(hans lækníngabók, sem er mjög áreiðanleg, kvað nú vera
útlögð á dönsku), Heussinger, og margir fleiri, er hér yrði
of lángt upp að telja.
Á Frakklandi eru þessir:
Alibert, Andral, Baron, Bouchardat (nafnkunnur fyrir
hans nýju bók um meðalanna verkanir), Builland, Bre-
schet, Barthex, Bequerall, Legrouf, Guerard, Grisolle,
Chomel, Cruveilhier, Biett, Billard, Bayer, Dubois, Guer-
sent, Diégæs, Lallemand, Louis, Delpech, Magendie, Civiale,
Piedaquel, Pjarry, Sandras, Throusseau, Velpeau, o. fl.
Á Einglandi:
Abererombic, James Arnott, Bright, Brodié, Bird, Bur-
nett, Budd, Burns, Clark, Copland, Cooper, Cottle, Car-
penter, Headland, Lee, Davies, Elliotson, Evanson, Tor-
bes, Cuthrie, Hope, Guy, Millingen, Hooper, Churchill,
Hall, Marshall Hall, Holland Liston, Prout, Sehill, Sto-
kes, Smee, Thompson, Wallace, John Williams, Joseph
Williams, James filson, Erasmus Wilson, William
Addison, Forbes, Winslow. Það er sannarlega ekki að sjá,
að prestarnir þekki einn einasta af þessum rithöfundum,
og þó eru það þeir, er mest og bet hafa ritað um lækn-
isfræðina á vorri öld, og valdið framförum hennar.
Í Danmörku, Svíþjóð og Noregi eru þessir hinir helztu
læknar á vorri öld:
Herholdt, Callisen, O. Bang, Eschricht, Otto, Sommer,
Fenger, Thal, Withusen Möller, Christensen, Trier, Huss,
Hjort, Holst, Heiberg, Boeck, Skjeldrup, Lund, Conradi,
Danielsen, o. fl.
Það væri nú gaman, ef blessaðir prestarnir vildu fræða
almenníng um, hvað þessir læknar, sem eru einmitt lækn-
ar vorrar aldar, segja um homöopathiuna. Flestir af þeim
hafa meira og minna nefnt hana, en einginn til góðs, og
allir munu þeir samdóma um, að hún sé til einkis nýt.
42
Það er þannig til einkis fyrir söra Magnús, þótt hann þyk-
ist hafa 10. eða 16 meðöl við Jarnaveikinni, því allir
merkir læknar vita, að hin homöopathisku meðöl hafa einga
verkun, hvorki á hina sönnu barnaveiki eða nokkurn ann-
an bráðan og hættulegan sjúkdóm; þetta er margreynt al
hinum duglegustu læknum vorra tíma, og einginn samvizku-
samur læknir fer framar að reyna slíkar hégiljur, þar sem
slík hætta er á ferðum. Eg vil eingan veginn ímynda
mér, að norðlenzku prestarnir, gjöri það á móti sannfær-
íngu sinni, að ráða til slíkra meðala í svo hættulegum sjúk-
dómi, eg vil gjarnan trúa því, að þeir haldi, að það sé svo,
en þetta kemur af því, að þeir þekkja ekki sjúkdóminn, og
hafa þannig oftraust á því, er þeir hafa séð og lesið í
þessum homöopathisku fégiljum, óvitandi um, að þetta er
margreynt af hinum samvizku-fyllstu læknum. Eg fyrir
mitt leyti hefði verið lángtum fúsari til að reyna etthvert
aðgengilegt meðal við þessari óttalegu veiki, ef eg sæi nokk-
ur líkindi til, að það gæti hjálpað, hvort sem það væri
upp fundið af bónda, presti eða hverjum sem væri, heldur
en þessa homöopathisku hjátrúar-hégilju, sem eg af reynsl-
unni veit, að er handónýt. Eigi að síður voru menn
hér í fyrra vetur að stauta við þessi homöopathisku meðöl,
og reynslan varð, eins og vænta mátti, að hér dó í suð-
uramtinu fjöldi barna, sem þau voru gefin, hvar um eg
hef opinbera skýrslu. Að einstaka leikmenn þóttust sjá
gagn af þeim, kom af því, að þeir þekktu ekki sjúkdóminn,
og tóku þýngsla-kvef, sem batnar af sjálfu sér, fyrir barna-
veiki. Það getur vel verið, að það hafi verið ofhermt, er
híngað barst, sumsð, að sðra Magnús þættist hafa óbrigðul
meðöl við barnaveikinni, en eigi að síður var það þó al-
mennt talað.
Það mundi alls ekki detta mér í hug, að amast við
söra Magnúsi, söra Þorsteini eða öðrum menntuðum mönn-
um, þótt þeir vildu hjálpa löndum sínum með læknínga-
tilraunum, ef þeir gjörðu það á vanalegan hátt, t. a. m.
2
eins og söra Jón á Grenjaðarstað, faðir séra Magnúsar,
43
hefur gjört, og ýmsir aðrir, og hafa þannig án efa hjálpað
mörgum manni. Slíkt kalla eg vel gjört, og þykir all-illt,
að séra Magnús, í stað þess að feta í fótspor föður síns,
hefur gefið sig við þessu homöopathiska rugli, sem naum-
ast mun verða honum eða öðrum til mikillar hamíngju,
einkum þegar hann með hrokafullum sérgæðíngsskap og
óverðskulduðum bnjóð til hinna reglulegu lækna er að setja
sig Í dómarasætið, eins og væri hann einhver hinn mesti
læknir, er uppi væri á vorum dögum.
Hvað umburðarlyndi embættisbræðra minna í norður-
og austurumdæminu við homöopathiuna snertir, sem séra
Magnús er að hrósa þeim fyrir (sjá bls. 65), þá held eg
víst, að hann gjöri fullt svo mikið úr því, sem það er, og
hefur einn þeirra í bröfi til mín mælgæt til, að eg vildi láta
prenta kafla úr skýrslu hans til heilbrigðisráðsins um hana
í þessu riti, hvað eg hér með gjöri; en þessi kafli hljóðar
svona :
„Hvað skottulækníngar snertir, þá er því eins háttað
hör, sem annarstaðar á landi þessu, að sumir menn hafa
gefið sig við þeim. En í læknisdæmi mínu hefur þetta
tekið þá stefnu, að kalla má, að skottulækníngar allopath-
anna hafi orðið að flýja byggðina fyrir homöopathanna
lækníngum. Að sönnu verður hér vart við einstöku skottu-
lækna af hinum fyr nefnda flokki, en sá á meðal þeirra,
sem mest kvað að, og það var prestur einn, varð að gefa
frá sér allar lækningar, því honum vildi til sú óheppni,
að brauðið, sem hann þjónar, hafði sinn homöopathann til
hverrar handar, og hafa þeir orðið honum yfirsterkari. Hér
eru sumsé 2 velæruverðugir kennimenn í Þíngeyjarsýslu,
sem iðka homöopathiuna, Magnús prestur Jónsson á Grenj-
aðarstað, og Þorsteinn prestur Pálsson á Hálsi, hinn þriðji,
bóndamaður nokkur hér í Eyjafirði, fluttist héðan, litlu eptir
að eg kom híngað, austur í Vopnafjörð, með því honum
bauðst þar atvinna. En þótt hann sé farinn, þá er hér
eptir í nágrenni við mig lærisveinn hans, að nafni Grím-
44
ur Pálsson, það er bóndamaður, og fetar dyggilega í fót-
spor kennara síns, en öll hans speki segja menn sé rituð
á eina pappírs-örk, hann skilur naumast dönsku, en því
síður þýzku. Þessir nýnefndu velæruverðugu homöopatha-
skottulæknar hafa, eins og allt þetta villuráfandi skottu-
lækna-kyn, haft sérlegt lag á því, að gjöra meðöl og lækn-
íngar allopathanna tortryggileg í augum leiðitamrar alþýðu,
og eins og homöopöthum er tamt, hæla sjálfum sör mest,
og þykja sér í eingu skjátla, hefja og þannig homöopathi-
una til skýja, með því að niðra allopöthum sem allra mest.
Menn þessir hafa mikla aðsókn, jafnvel svo mikla, að mælt
er, að þeir hafi naumast haft tíma til að gegna prestverk-
um sínum; þeir lækna bæði menn og skepnur; þeir hafa
meðöl bæði við líkamlegum kvillum, og ýmsum sálar-sjúk-
dómum (t. a. m. þeim er koma af því, að ástir bregðast
milli karls og konu); eptir því, sem þeim segist frá, hafa
þeir bót við öllum meinum. Hvað reynslu mína á lækn-
íngum þessum snertir, þá hef eg heyrt margar sögur um
kraptaverk þeirra, en eg met þær að eingu, meðan eg hef
einga áreiðanlega vissu í því efni, og á meðan mér hefur
ekki gefizt færi á að skoða sjúklínga þá, er þeir hafa lækn-
að, en mör er ekki kunnugt um, að nokkrum manni hafi
hjá þeim batnað, er eg áður hef haft til læknínga; eg hef
jafnvel gjört á því dálitla tilraun: eg ráðlagði manni ein-
um, sem veikur var á geðinu, og sem eg hafði haft til
lækninga í sumar, sem leið, að hann skyldi leita ráða til
homöopathanna, með því eg hélt, að ef lækningar þeirra ættu
nokkurstaðar að hjálpa, þá mundi það vera hér, þar sem
um slíkan sjúkdóm væri að gjöra. Sjúklíngur þessi hefur
nú reynt dropa þeirra allan veturinn, en er nú kominn
aptur til mín, talsvert lakari en áður, að kalla má, hálí-
brjálaður. Þannig hafa homöopatharnir eingan mann lækn-
að, sem eg áður hef feingizt við, en hins vegar eru þeir
ekki svo fáir, sem eg hef læknað, er áður hafa um leingri
eða skemmri tíma reynt meðöl homöopathanna. Það má
þannig færa sterkar líkur til þess, að læknínga-tilraun ho-
45
möopatha hafi eingu góðu til vegar komið í læknisdæmi
því, sem eg er yfir skipaður, og hitt er hægt að sýna fram
á, að það hefur illt eitt af þeim staðið, eins og sjá má af
því, er eg áður sagði. Það sér hver maður, og einkum
læknirinn, hversu mjög er undir því komið, til þess að
lækningar geti heppnazt vel, að menn geti náð í sjúkdóm-
inn þegar við fyrstu upptök hans og rætur; á þessu hef
eg marg-opt eingan kost átt, þar eð sjúklíngarnir hafa áður
verið búnir að leita hjálpar hjá homöopöthunum, og leingi
verið búnir að reyna meðöl þeirra, áður þeir hafa vitjað
mín, en á meðan hefur sjúkdómurinn magnazt í þeim, lækn-
íngin orðið erviðari, og stundum alsendis árángurslans. Það
hefur einnig ekki sjaldan borið til, að sjúklíngum, sem eg
hef verið að fást við, hefur leiðzt að bíða batans hjá mér,
hlaupið til homöopathanna, eptir áeggjun þeirra manna,
sem á þá trúa, og þegar þeim hefur heldur ekki viljað
batna þar, hafa þeir síðan komið aptur til mín, og þá hefur
opt verið komið svo, að þeir hafa verið miklu lakari, en
þá er þeir fóru frá mör; þetta hefur meðal annars átt sör
stað stöku sinnum, þar sem um hættulega sjúkdóma var
að ræða, og sjúklíngarnir hafa dáið, en sem að líkindum
hefðu mátt lífi halda, ef lækníngunum hefði ekki verið hætt
svona í miðju kafi. Þess er og getandi, að skottulæknar
þessir skerða bæði réttindi lækna og lyfsölumanna, því ho-
möopathar vorir kanpa sjálfir meðölin frá útlöndum, og
selja þau síðan hör í landi, opt við óguðlegu verði. Og
rekur hér þá að því, sem mjög er merkilegt, að höraða-
læknar hör í landi fyrirskrifa meðöl frá innlendum lyfja-
búðum, en þessum homöopatha skottulæknum skal, þrátt
fyrir það, þótt eingin vissa sé fyrir því, hvort þeir hafi
nokkra eður einga þekkíngu á læknisfræði, haldast uppi,
að hafa talsverða meðala-verzlun, og það á þeim meðöl-
um, sem þeir hafa pantað beinlínis frá útlöndum, og eru,
sum hver, hinar skæðustu eiturtegundir. En svo er að
sjá af bréfi lögstjórnar-ráðgjafans frá 29, Mai 1855, að
skottulækníngar þessar megi líðast hér í landi, þótt þær
46
leyfist ekki. Eg ætla samt, að trúin á almætti homöopath-
anna sé hér heldur í rönun, þótt meiri þorri alþýðu sö
þeim meðmæltur; hygg eg og, að ýmsir ritlíngar í blöð-
unum eigi hér að góðan þátt, með því landlæknir vor hef-
ur með miklum dug og heppni brotið niður kenníngar
homöopathanna; eg er heldur ekki fjærri því, að lækningar
mínar, sem hafa verið talsverðar, og heppnazt fremur vel
en hitt, hafi átt nokkurn þátt í því að hefja allopathiuna
yfir hina. Að lyktum verð eg að geta þess, að álit mitt
er, að hið óbrigðulasta meðal til þess að út rýma allskonar
skottulækníngum, bæði allopatha og homöopatha, mundi
vera það, að koma læknaskipun allri hér í landi á góðan
og fastan fót.
Akureyri 8. Jan. 1857.
Jón Finsen.“
Hvað hinir aðrir læknar norður- og austur-umdæmis-
ins hafa ritað híngað í skýrslum sínum um Romöopathi-
una, læt eg hjálíða að um tala í þetta sinn, en get að eins
þess, að hefði eg látið það þegjandi fram hjá mér fara,
þá var það fullkomin og naumast bótmælandi forsómun á
embættisskyldu minni, enda þótt sumir kunni að hafa á-
lasað mér fyrir, að eg löt það ekki sem vind um eyrun
þjóta. Eg hef uú í því tilliti leyst hendur mínar, og læt
mér það því í löttu rúmi liggja, þótt sumir til að ávinna
sér almenníngslof, hafi neitað mér um aðstoð þá í þessu
máli, er eg hafði fulla kröfu á eptir landslögum og rétti;
þessir menn hafa þar með sýnt, hvernig stjórn þeirra er,
og mun hún lofa sig sjálf, ef vel er. Um dóminn á riti
mínu gegn „Fjölni“ er það að segja, að eg mun eins sæll
af honum og mótstöðumenn mínir voru og verða í því
máli. Það eru allmargir nú farnir að efast um nytsemi
þá, er „Fjölnir“ hafi gjört, og áður en jafnmörg ár líða, og
liðin eru frá endalokum „Fjölnis“ gjöri eg ráð fyrir og tel
víst, að hrósið um homöopathiuna íslenzku verði orðið að
homöopathiskri þynníngu í 10. veldi.
EA
AT
Eg hætti nú í þetta sinn, án þess þó að lofa því, að
þetta „skuli“ verða í seinasta sinni, er eg ávarpa hina ís-
lenzku smáskamtafræði.
Til herra stud. politic. Arnljóts Ólafssonar.
Herra Arnljótur Ólafsson hefur í seytjánda ári „Fölagsritanna
nýju“ fundið sig kallaðan til að senda löndum sínum ávarp um „sam-
veikislækna“, er hann svo kallar, af því honum þykir vér „allopathar“
gjöra þeim þúngar búsifjar, fara illa með þá, og vilja niður níða þennan
svonefnda nýja lærdóm þeirra. það gegnir sannarlega furðu, þegar
menn jafnmenntaðir, og A. Ólafsson er, skuli vera að kalla það nýtt,
sem allir þeir, er þekkja nokkuð til læknisfræðinnar, vita, að er því nær
afgamalt marghrakið gutl, er eingir gefa sig að á vorum dögum, nema
þeir einir, er vilja blinda fólk og narra út úr því penínga. „Homöo-
pathian“ er marg-reynd af hinum beztu og samvizkusömustu læknum,
er lifað hafa um vora daga, og þessir hafa allir fundið hana ónýta og
á vitleysum byggða; þetta er eigi að eins læknissögunnar, holdur og mann-
kynssögunnar dómur, sem eigi verður hrakinn, og sem það hefði verið
skylda „Félagsritanna“ og herra A. Ólafssonar að brýna fyrir löndum
sínum, til að vara þá við öllum hinum homöopathisku vitleysum, og eigi
veit eg, hvernig hinni reglulegu læknaskipun á að fara fram á landi hér,
þegar hinir úngu menntavinir yorir eru að troða upp á landa sína eins
rángsnúnu, og mör liggur við að segja illviljuðu áliti um lækna, eins
og gjört er í þessu riti. Hvaða rött hefur herra Arnljótur til að gjöra
allopöthunum þær gersakir, er hör eru gjörðar? það er eins og þeir
væru allir saman samvizknlausir menn, sem einúngis hugsuðu um sinn
eiginn hag, þættust hafa nóg gjört, þegar þeir væru búnir að afljúka
Jærdómsprófi sínu, o.s.frv. Mör finnst nú þetta eingan veginn vera að
hlynna að læknaskipuninni á Íslandi, allra sízt þegar landar þar á ofan
eru blekktir með því, hvílíkir makalausir menn homöopatharnir eigi að
vera. Eg get því eigi annað en álitið það að vera tómt háð, þegar rit-
höfundur þessi er í enda, greinarinnar að hvetja mig til að auka hina
allopathisku læknaskipun á Íslandi. Eins og nú er komið fyrir „Fölags-
ritunum“, væri þeim víst beztað snúa hinu „ágæta ritil!“ Dr. Wil-
kinsons á íslenzku; eg hef raunar eingan botn og einga sanna ástæðu
homöopathiunni til styrktar getað fundið í því, en hver veit, hvað lönd-
um kann að takast, í hið minnsta mundu þeir aldrei meira móúttæki-
legir fyrir slíkum röksemdum, sem þar eru bornar á borð, en þeir eru
48
nú á tímum. það er því bezt fyrir herra Ólafsson að smíða, meðan
járnið er heitt, en um sama leytið og hann gjörir löndum sínum þenn-
an velgjörníng, þá vona eg að hana sem samvizkusamur maður skýri
þeim frá, hvaða dóm þetta rit hefur feingið í hinum merkustu “tíma-
ritum á Einglandi; hvað skráð hefur verið um homöopathíuna á seinni
tímum hör á Norðurlöndum, og hvaða ávöxt hún hafi sýnt þar og ann-
arstaðar Í norðurálfu heims á hinum seinustu 10 árum. Eg leyfi mör
að vísa herra Óla fssyni á eitt sænskt læknisrit, sem „Hygiea“ kall-
ast, og út kemur Í Stokkhólmi; í þessu riti hefur verið skráð um ho=
möopathiuna og hreystiverk hennar rétt um sama leytið og hann var
að skrifa í „Félagsritin“ í fyrra, en sögurnar eru nokkuð á aðra leið, því
þar er homöopöthum vísað til sætis hjá spákonum og galdramönnum,
og sýnist, að þeir hafi eigi þorað að láta lærdóm sinn prófa á vísinda-
legan hátt. -— Eg skora á herra Ólafsson, að snúa þessu riti, svo
framarlega sem honum er annt um, að landar hans fái sannleikann að
heyra í þessu máli. það væru líka mátulegar athugasemdir við Wil-
kinson.
Þegar herra Arnljótur ætlar að slá landa sína með því að sýna
þeim (sjá blaðs. 177), að norðurálfan hafi 922 samveikislækna, þá hefði
hann um leið átt að gjöra þá athugasemd, að tala þessi er sára ó-
m erkileg, þegar hún er borin saman við tölu allopathisku læknanna
á hinu sama svæði, því tala þeirra mun vera fullar tvær millíónir,
og sýnir þetta ljóst, hvað litla tiltrú homöopathian hefur getað aflað sör
nú í 60 ár, og vart mun nokkur hjátrúarflokkur sá til á vorum
dögum, sem eigi hafi fleiri áhángendur við að styðjast. Líka finnst mör
hann hefði átt að geta þess, hvað hægt er að verða homöopath, eins
og dæmin sýna hör á Íslandi, þvi nú munu hér upp sprottnir á stutt-
um tíma fleiri homöopathar, en frá megi segja, eins og sjá má af
„Skírni“, þar sem þorvaldur nokkur Jónsson „homöopath, er upp
sprottinn úr honum allt að einu, eins og Mínerva forðum úr hauskúpu
Júpíters.
Reykjavík ó. Aug. 1858.
J. Hjaltalín.